Hoppa yfir valmynd

Frétt

15. mars 2011 Utanríkisráðuneytið

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna kosninga 9. apríl

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna þjóðaratkvæðagreiðslu, um framtíðargildi laga nr. 13/2011 sem fram fer 9. apríl 2011 hefst 16. mars n.k. og fer fram í öllum sendiráðum Íslands erlendis og aðalræðisskrifstofum Íslands í New York,  Winnipeg, og Þórshöfn í Færeyjum. Einnig er unnt að kjósa utan kjörfundar eftir samkomulagi hjá kjörræðismönnum Íslands erlendis, samanber meðfylgjandi lista. Búist er við því að kosið verði á u.þ.b. 235 stöðum í 84 löndum. Væntanlegum kjósendum er vinsamlegast bent á að hafa samband við ræðismenn áður en þeir koma til að kjósa. Hagnýtar upplýsingar um kosningarnar er að finna á vefsetrinu: www.kosning.is

Athygli kjósenda er ennfremur vakin á því, að þeim ber sjálfum að póstleggja atkvæði sín eða koma þeim á annan hátt í tæka tíð til viðkomandi kjörstjórnar á Íslandi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum