Hoppa yfir valmynd

Frétt

22. mars 2011 Dómsmálaráðuneytið

Umboðsmenn andstæðra sjónarmiða

Landskjörstjórn hefur skipað tólf einstaklinga sem umboðsmenn ólíkra sjónarmiða við þjóðaratkvæðagreiðsluna í einstökum kjördæmum, skv. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 91/2010, um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna, sbr. 2. gr. laga nr. 23/2011, um breytingu á þeim lögum.

Hlutverk umboðsmanna er eftirfarandi:

  1. Umboðsmaður hefur rétt til að fylgjast með framkvæmd atkvæðagreiðslunnar á einstökum kjörstöðum í kjördæminu og gæta að því að kjörstjórn og kjósendur hegði sér þar í samræmi við lög nr. 91/2010 og lög nr. 24/2000, um kosningar til Alþingis, sbr. til hliðsjónar 94. gr. laga 24/2000. Verði hann áskynja um eitthvað ólöglegt við kosningarathöfnina og fái það ekki leiðrétt á hann rétt á að fá bókað um ágreininginn í kjörbókina og sker landskjörstjórn þá úr hvaða áhrif það hafi.
  2. Ef umboðsmaður telur kjörstjórn ekki meta utankjörfundaratkvæði með réttum hætti, sbr. 91. gr. laga nr. 24/2000, getur hann krafist bókunar um ágreininginn í kjörbókina og er þá kjörseðilsumslag ásamt fylgibréfi lagt aftur í sendiumslagið og atkvæðið sent til úrskurðar yfirkjörstjórnar.
  3. Umboðsmaður skal vera viðstaddur talningu atkvæða hjá viðkomandi yfirkjörstjórn og fylgjast með því að meðferð kjörstjórnar á atkvæðasendingum og talning fari fram í samræmi við lög nr. 91/2010 og lög nr. 24/2000. Telji umboðsmaður að meðferð á atkvæðasendingum eða aðferð við talningu sé ekki lögum samkvæmt og beiðni hans um leiðréttingu er ekki tekin til greina  getur hann fengið bókað um ágreininginn í gerðabók kjörstjórnarinnar og sker landskjörstjórn úr um niðurstöðu í málinu.
  4. Verði ágreiningur milli umboðsmanns og yfirkjörstjórnar um gildi atkvæðis, sbr. 100. og 101. gr. laga nr. 24/2000, skal leggja þá kjörseðla sem ágreiningur er um í tvö sérstök umslög, í annað þá seðla sem kjörstjórnin hefur úrskurðað gilda og í hitt þá seðla sem hún hefur úrskurðað ógilda, sbr. 3. mgr. 103. gr. laga nr. 24/2000. Yfirkjörstjórn sendir landskjörstjórn seðlana sem sker úr um gildi þeirra, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 91/2010.

Eftirtaldir einstaklingar voru skipaðir:


Norðausturkjördæmi:
Já: Arnbjörg Sigurðardóttir, hdl.  464-9900 [email protected]
Nei: Ingvar Þóroddsson, hdl.   466-2700 [email protected] 

Norðvesturkjördæmi:
Já: Pétur Kristinsson, hdl.  438-1199  [email protected]
Nei: Ingi Tryggvason, hdl.    437-2181  [email protected]

Suðurkjördæmi:
Já: Andrés Valdimarsson, hrl.   893-3311 [email protected]
Nei: Sigurður Jónsson, hrl.   480-1816 [email protected]

Reykjavíkurkjördæmi norður:
Já: Ásdís J. Rafnar,hrl.    899 2193 [email protected]
Nei: Hulda Rós Rúriksdóttir, hrl.  520-1050 [email protected]

Reykjavíkurkjördæmi suður:
Já: Inga Björg Hjaltadóttir, hdl.   533-3200 [email protected]
Nei: Björn Jóhannesson, hdl.  456-4577 [email protected]

Suðvestur kjördæmi:
Já: Eva Margrét Ævarsdóttir, hdl. 590-2600 [email protected]
Nei: Hjördís E. Harðardóttir, hrl. 520 4120  [email protected]

 





Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum