Hoppa yfir valmynd

Frétt

4. apríl 2011 Dómsmálaráðuneytið

Sigríður J. Friðjónsdóttir skipuð ríkissaksóknari

Innanríkisráðherra skipaði í dag Sigríði J. Friðjónsdóttur vararíkissaksóknara í embætti ríkissaksóknara. Sigríður tekur við embættinu af Valtý Sigurðssyni. Ögmundur Jónasson afhenti Sigríði skipunarbréfið í ráðuneytinu í dag.

Sigriður J. Friðjónsdóttir skipuð ríkissaksóknari
Sigriður J. Friðjónsdóttir skipuð ríkissaksóknari

Sjö umsóknir bárust um embætti ríkissaksóknara en umsóknarfrestur rann út 28. febrúar síðastliðinn. Umsóknirnar hafa verið til meðferðar hjá hæfnisnefnd sem var ráðherra til fulltingis við undirbúning skipunar í embættið og skilaði hún rökstuddu mati á hæfni umsækjenda.

Sigríður J. Friðjónsdóttir er fædd 1961 og lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 1986 og Diploma in Law frá University College London 1987.

Sigríður fékk leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi 1991. Hún var fulltrúi borgarfógetans í Reykjavík í fimm mánuði árið 1986, fulltrúi sýslumannsins á Sauðárkróki í fjögur ár 1987 til 1991, aðalfulltrúi frá 1989, fulltrúi á lögmannsstofu Eggerts B. Ólafssonar hdl. 1991 til 1993, fulltrúi hjá rannsóknarlögreglu ríkisins 1993 til 1997 og fór þar með rannsóknarstjórn tiltekinna mála. Hún flutti einnig fjölda opinberra mála fyrir héraðsdómi sem ríkissaksóknari fól rannsóknarlögreglustjóra að fara með. Sigríður var fulltrúi við embætti ríkislögreglustjóra 1997 til 1998 og hefur verið saksóknari við embætti ríkissaksóknara frá 10. ágúst 1998, þar af sem vararíkissaksóknari frá 1. september 2008. Hún var kosin saksóknari Alþingis 12. október 2010.

Sigríður hefur setið í nokkrum nefndum á vegum dómsmálaráðuneytisins, starfað við kennslu og á alþjóðlegum vettvangi hefur hún verið fulltrúi ríkissaksóknara frá árinu 2000 í fjölþjóðlegum starfshópi um mansal og kynferðislega misnotkun kvenna og barna. Hún hefur og sótt ýmsar námsstefnur og námskeið þar sem fjallað hefur verið um refsiréttarleg málefni.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum