Hoppa yfir valmynd

Frétt

20. maí 2011 Dómsmálaráðuneytið

Reglur um sérstakar aðferðir og aðgerðir lögreglu við rannsókn sakamála

Settar hafa verið reglur um sérstakar aðferðir og aðgerðir lögreglu við rannsókn sakamála á grundvelli 89. gr. sakamálalaga nr. 88/2008. Reglurnar hafa verið sendar Stjórnartíðindum til birtingar og taka þær gildi 24. maí næstkomandi.

Rannsóknaraðferðir þessar eru ekki nýjar af nálinni heldur er verið að formfesta þær með reglum frá innanríkisráðuneytinu. Áður voru í gildi leiðbeinandi reglur sem ríkissaksóknari setti árið 1999 og byggðust á skýrslu um sérstakar rannsóknaraðferðir lögreglu, sjá hér.

Drög að reglunum voru unnin af hópi á vegum ríkissaksóknara í samræmi við sakamálalög. Þau tóku breytingum í meðferð ráðuneytisins. Sett eru skýrt afmörkuð skilyrði fyrir því hvenær má nýta rannsóknarúrræði sem þessi.

Núverandi skilyrði í lögum fyrir rannsóknarheimildum sem fást fyrir dómi, svo sem símhlerun og notkun eftirfararbúnaðar, eru að brotið varði að lágmarki 8 ára fangelsi eða að ríkir almannahagsmunir eða einkahagsmunir krefjist.

Mikilvægt er að gera greinarmun á þeim aðferðum sem þarf að fá sérstakan dómsúrskurð fyrir, svo sem til að hlera síma og koma fyrir eftirfararbúnaði, og aðferðum sem ekki þarf dómsúrskurð fyrir og kveðið er á um í reglunum.

Í reglunum er kveðið á um þau skilyrði sem þurfa að vera fyrir hendi til að lögregla geti beitt tálbeitum, flugumönnum, haft fíkniefnasendingu undir stöðugu eftirliti, átt samband við uppljóstrara úr glæpahópum, beitt skyggingu (sem gengur út á að fylgjast með meintum glæpamanni á almannafæri), notast við dulargervi, til dæmis til að koma póstsendingu sem inniheldur fíkniefni á leiðarenda og skráð upplýsingar sem birtast á vefsíðum eða átt í netsamskiptum án þess að auðkenni lögreglu komi fram.

Rétt þótti að láta strangari reglur gilda um þær rannsóknaraðferðir sem ekki þarf dómsúrskurð fyrir og er því kveðið sérstaklega á um þau brot sem reglurnar ná til og varða fangelsi skemur en til átta ára. Þar á meðal eru kynferðisbrot á borð við vændi og nettælingu sem beinist að börnum, auðgunarbrot og fíkniefnabrot. Þá er sérstaklega kveðið á um að rannsóknarúrræðunum megi beita gegn skipulagðri glæpastarfsemi en við henni sem slíkri liggur fjögurra ára fangelsi. Loks er beiting flugumanna háð sérstöku samþykki ríkissaksóknara umfram aðrar rannsóknaraðferðir en það rannsóknarúrræði felur í sér mest brot á friðhelgi einkalífs af þeim aðgerðum sem kveðið er á um í reglunum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum