Hoppa yfir valmynd

Frétt

31. maí 2011 Forsætisráðuneytið

Drög að skýrslu um stöðu mannréttindamála á Íslandi kynnt

Drög að skýrslu um stöðu mannréttindamála á Íslandi hafa nú verið sett á vef ráðuneytisins til kynningar og athugasemda en skýrslan verður hluti af úttekt Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttindamála í aðildarríkjunum. Ráðuneytið hefur einnig boðað til opins morgunverðarfundar í Iðnó miðvikudaginn 1. júní kl. 8.15 til 10 til að kynna drög að skýrslu Íslands.

Vinnuhópur á vegum innanríkisráðuneytisins og fleiri ráðuneyta hefur að undanförnu unnið að skýrsludrögunum í samræmi við drög að kaflaskipan sem kynnt var fyrir fjölmörgum hagsmunaaðilum og félagasamtökum sem starfa á sviði mannréttindamála. Skýrslu Íslands á að skila eigi síðar en 4. júlí næstkomandi. Hagsmunaaðilar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að senda athugasemdir við drögin á netfangið [email protected] fyrir 16. júní nk.

Á morgunverðarfundinum flytur Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra ávarp og síðan mun Rósa Dögg Flosadóttir, formaður vinnuhópsins, kynna verkefnið og Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, kynnir aðkomu skrifstofunnar að verkefninu. Að loknum kynningum verða síðan pallborðsumræður með vinnuhópi verkefnisins. Halla Gunnarsdóttir, aðstoðarmaður innanríkisráðherra, stýrir fundinum.

Fundurinn hefst kl. 8.30 en húsið er opið frá kl. 8.15 og geta fundarmenn keypt sér léttan morgunverð á innan við 1.000 krónur. Þeir sem hyggjast sækja fundinn eru beðnir um að skrá sig með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected] eigi síðar en um hádegi á morgun, þriðjudaginn 31. maí.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum