Hoppa yfir valmynd

Frétt

3. júní 2011 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 2/2011

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

  1. Gisting og fæði í einn sólarhring, kr. 26.000
  2. Gisting í einn sólarhring, kr. 16.600
  3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag, kr. 9.400
  4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag, kr. 4.700

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2011. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 3/2010 dags. 1. október 2010.

Í gildi eru hagstæðir rammasamningar Ríkiskaupa við hótel og gistihús um gistingu og veitingar fyrir ríkisstarfsmenn á ferðalögum innanlands. Nánari upplýsingar um samningana er að finna á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is, með aðgangsupplýsingum sem stofnunin veitir, [email protected]

Nefndin fer þess á leit við ráðuneyti og stofnanir að viðmiðunarfjárhæðir um greiðslur dagpeninga og rammasamningar um gistingu og veitingar verði kynntir starfsfólki.

Vakin er athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármálaráðuneytisins og er veffangið eftirfarandi: www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostnadur.

Reykjavík, 31. maí 2011.

Ferðakostnaðarnefnd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum