Hoppa yfir valmynd

Frétt

11. júlí 2011 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra fundar með kanslara Þýskalands

Jóhanna Sigurðardóttir og Angela Merkel kanna heiðursvörð á leið til fundar
Jóhanna Sigurðardóttir og Angela Merkel kanna heiðursvörð á leið til fundar

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra átti í dag fund með Angelu Merkel, kanslara Þýskalands í Berlín. 
Á fundi þeirra var rætt um efnahagsmál og meðal annars þær áskoranir sem nokkur ríki á evrusvæðinu glíma nú við á sviði efnahagsmála.  Rætt var um samningaviðræður Íslands um aðild að Evrópusambandinu, orkumál og norðurslóðamál.  Einnig var sérstaklega rætt um menningarsamskipti ríkjanna, en Ísland er heiðursgestur á bókamessunni í Frankfurt í október næstkomandi og munu nálægt 180 íslenskar bækur og bækur um Ísland, koma út á þýsku af þessu tilefni.

Á blaðamannafundi sem haldinn var eftir fund kanslara og forsætisráðherra hrósaði Merkel íslenskum stjórnvöldum fyrir að hafa tekist að reisa efnahag sinn við eftir hið alvarlega áfall og hrun bankakerfisins haustið 2008.  Undravert væri hversu góður árangur hefði náðst, en ljóst væri að íslenska þjóðin hefði lagt mikið á sig til að ná þeim árangri.  Fordæmi Íslands væri mikilsvert til að sýna hvernig ná mætti árangri með markvissum aðgerðum. Kanslarinn fagnaði aðildarumsókn Íslands og taldi það eiga vel heima í hópi Evrópusambandsríkja.  Hún ræddi einnig um mikilvægi Norðurskautsráðsins og hlutverk þess á heimskautasvæðinu.

Forsætisráðherra lýsti ánægju sinni með að Þýskaland hefði sett sér skýra stefnu í orkumálum og hygðist auka hlut endurnýjanlegrar orku.  Hún þakkaði fyrir hvatningarorð kanslarans varðandi árangurinn sem náðst hefði á Íslandi í efnhagsmálum, svo og jákvæðni og stuðning Þýskalands í aðildarviðræðuferlinu.  Ísland væri stolt og þakklátt fyrir að vera í heiðurssessi á bókamessunni í Frankfurt, fyrst norrænu ríkjanna.  Aukinn áhugi á menningu og sögu Íslands væri þakkarverður og aukin samskipti myndu efla enn frekar vinarþelið milli þjóðanna.

Forsætisráðherra bauð kanslaranum að sækja Ísland heim við fyrsta tækifæri.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra átti í dag fund með Angelu Merkel kanslara Þýskalands
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra átti í dag fund með Angelu Merkel kanslara Þýskalands

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum