Hoppa yfir valmynd

Frétt

20. júlí 2011 Forsætisráðuneytið

Ríkisstjórnin þakkar fyrir skjót og góð viðbrögð vegna hlaupsins í Múlakvísl

Ríkisstjórn Íslands sendir Vegagerðinni, almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, lögreglunni, björgunarsveitum, vísindamönnum, sveitarstjórnum á viðkomandi svæði sem og öllum þeim fjölmörgu aðilum öðrum sem komu að aðgerðum vegna hlaupsins í Múlakvísl, kærar þakkir fyrir skjótar og markvissar aðgerðir til að tryggja öryggi vegfarenda og koma á vegsambandi yfir fljótið á ný. Með faglegum og fumlausum vinnubrögðum tókst að lágmarka það tjón og óþægindi sem óhjákvæmilega hefði hlotist af langvarandi rofi á Hringveginum á þessum háannatíma ferðaþjónustunnar í landinu.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum