Hoppa yfir valmynd

Frétt

16. ágúst 2011 Heilbrigðisráðuneytið

Ársskýrsla Líffæraígræðslunefndar fyrir árið 2010, júní 2011

Líffæraígræðslunefnd sem fyrst var skipuð þann 5. september 2007 skilaði árskýrslu sinni fyrir árið 2010 til velferðarráðherra í júnílok 2011.

Í skýrslunni kemur fram að þann 1. janúar 2010 tók Sahlgrenska-háskólasjúkrahúsið í Gautaborg við því mikilvæga hlutverki að veita Íslendingum þjónustu á sviði líffæraígræðslna. Samstarfið hefur gengið vel og í nýlegri ársskýrslu Sahlgrenska International Care getur að líta yfirlit yfir líffæraígræðslur og aðra þjónustu sem stofnunin innti af hendi í þágu íslenskra sjúklinga á árinu 2010. Tölulegar upplýsingar um fjölda líffæragjafa og líffæraígræðslna eru til staðar í skýrslunni.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum