Hoppa yfir valmynd

Frétt

17. ágúst 2011 Utanríkisráðuneytið

Íslenskur sérfræðingur í almannavörnum til starfa í Jerúsalem

Sólveig Þorvaldsdóttir, verkfræðingur hefur verið send til starfa á vegum Íslensku friðargæslunnar til OCHA, Samræmingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum í Jerúsalem. Sólveig mun vinna innan vébanda OCHA að gerð áhættumats, neyðar- og viðbragðsáætlana fyrir Palestínu í samvinnu við palestínsku heimastjórnina.

Sólveig hefur víðtæka reynslu af gerð almannavarnaáætlana og björgunarstörfum. Hún var forstjóri Almannavarna ríkisins frá 1996-2003 en rekur nú alþjóðlegt ráðgjafafyrirtæki sem sérhæfir sig í gerð viðbragðsáætlana og forvörnum gegn tjóni sem hlotist getur af náttúruhamförum.

Undanfarin ár hefur Íslendingum hjá alþjóðastofnunum í Mið-Austurlöndum fjölgað til marks um þá áherslu stjórnvalda að Íslendingar taki beinan þátt í alþjóðastarfi á svæðinu.

Nú starfar Margrét Rögn Hafsteinsdóttir, sérfræðingur í heilsugæslu, hjá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, í Jerúsalem, en Elín Halla Ásgeirsdóttir, sérfræðingur í mannúðarmálum lét af störfum í sumar eftir tveggja ára veru á vegum Íslensku friðargæslunnar hjá OCHA í Jerúsalem.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum