Hoppa yfir valmynd

Frétt

29. ágúst 2011 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Vinna hefst við hættumat fyrir eldgos

Eldgosið á Fimmvörðuhálsi í fyrra.
Frá eldgosinu á Fimmvörðuhálsi 2011

Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum á föstudag, að tillögu Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra, að hafin yrði vinna við hættumat fyrir eldgos á Íslandi. Um viðamikla vinnu er að ræða sem gróflega er áætlað að taki 15 – 20 ár í heildina en fyrsti áfanginn er verkefni til þriggja ára.

Eldgosin í Grímsvötnum og Eyjafjallajökli hafa undirstrikað nauðsyn þess að vinna hættumat fyrir eldgos á Íslandi og hugsanlegar afleiðingar þeirra en margt bendir til að tímabil aukinnar eldvirkni sé hafið. Þannig má búast við eldgosi í Grímsvötnum annað til sjöunda hvert ár en þekkt er að goshrinur verða samhliða í eldstöðvakerfi Bárðarbungu. Þá eru líkur á eldgosi í Heklu á komandi misserum og reikna verður með Kötlugosi á næstu árum.

Þetta kallar á viðbúnað af hálfu stjórnvalda en í slíku hættumati fyrir eldgos fælist m.a. uppsetning viðvaranakerfa og gerð viðbragðsáætlana; mótvægisaðgerðir sem tækju til landnýtingar, innviðavarna, trygginga og varnarvirkja; þekkingaruppbygging í gegn um kennslu, þjálfun, rannsóknir og miðlun upplýsinga og loks að farið yrði yfir lög og reglugerðir með tilliti til ólíkra hlutverka stofnana í þessu samhengi.

Hættumatið verður unnið samkvæmt hættumatsramma alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar (WMO) og Sameinuðu þjóðanna en góður árangur hefur náðst í hættumati vegna ofanflóða með þessari aðferðafræði. Gert er ráð fyrir að margar stofnanir komi að verkinu, s.s. Veðurstofa Íslands, Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra, Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, Landgræðsla ríkisins og Vegagerðin.

Þegar hefur Alþjóðaflugmálastofnunin (ICAO) veitt fjármagni til Veðurstofu Íslands til að gera úttekt á íslenskum eldstöðvum vegna alþjóðaflugsins sem nýtast mun mjög vel í heildarhættumati.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum