Hoppa yfir valmynd

Frétt

10. október 2011 Dómsmálaráðuneytið

Benedikt Bogason settur dómari við Hæstarétt Íslands til þriggja ára

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur sett Benedikt Bogason dómstjóra í embætti dómara við Hæstarétt Íslands frá og með 1. nóvember 2011 til og með 31. desember 2014.

haestirettur
Hæstiréttur Íslands

Umsækjendur auk Benedikts voru Guðjón Ólafur Jónsson hæstaréttarlögmaður, Ingimundur Einarsson héraðsdómari og Þorgeir Ingi Njálsson dómstjóri. Dómnefnd sem fjallar um hæfni umsækjenda um embætti dómara mat Benedikt hæfastan umsækjenda til að hljóta setningu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum