Hoppa yfir valmynd

Frétt

12. október 2011 Utanríkisráðuneytið

Rýniskýrsla Evrópusambandsins um byggðamál

Íslenskum stjórnvöldum hefur borist niðurstaða Evrópusambandsins vegna rýnivinnu um byggðamál sem er liður í viðræðum Íslands um aðild að ESB. Í svonefndri rýniskýrslu ESB er tíundaður málflutningur fulltrúa Íslands um sérstöðu Íslands vegna mannfæðar, strjálbýlis, dreifbýlis og fjarlægðar frá erlendum mörkuðum. Af helstu atriðum sem fram koma í skýrslunni má nefna:

·  Íslensk stjórnsýsla er lítil og sveigjanleg og til staðar er talsverð reynsla við rekstur og þátttöku í ýmsum áætlunum ESB.

·  Viðeigandi löggjöf er að mestu til staðar en styrkja þarf lagagrundvöll á nokkrum sviðum og tryggja að fjárlagagerð á sviði byggðamála taki mið af áætlanagerð til lengri tíma.

·  Við framkvæmd byggðastefnunnar ætlar Ísland að nýta núverandi stjórnsýslu eftir því sem kostur er og hafa hana smáa og einfalda í sniðum.

·  Þróa þarf verklag sem tryggir að reglum ESB um val verkefna og framkvæmd byggðastefnunnar verði fylgt og koma á fót samráðsferli milli ráðuneyta.

·  Starfsfólk stjórnsýslunnar er hæft og vel menntað en byggja þarf upp þekkingu vegna framkvæmdar byggðastefnunnar, m.a. á sviði áætlanagerðar, verkefnastjórnunar, eftirlits og mats.

·  Efla þarf stjórnun og eftirlit með ríkisútgjöldum þegar kemur að þeim þáttum sem nauðsynlegir eru til framkvæmdar byggðastefnunnar.

Niðurstaða ESB er kynnt með bréfi til íslenskra stjórnvalda. Þar kemur fram að sambandið telji að forsenda þess að hefja samningaviðræður um byggðamál sé að íslensk stjórnvöld leggi fram ítarlega og tímasetta aðgerðaáætlun þar sem fram komi skýr markmið að því er varðar framkvæmd byggðastefnunnar og þá stjórnsýslu sem nauðsynleg er. Slík áætlun sé mikilvæg í ljósi þess að Ísland hyggst ekki ráðast í stjórnsýslubreytingar í tengslum við aðildarviðræðurnar fyrr en eftir samþykkt aðildarsamnings í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Íslensk stjórnvöld munu nú hefja vinnu við áætlanagerðina og ljúka henni á næstu mánuðum svo hefja megi efnislegar samningaviðræður um málaflokkinn.

Rýniskýrsla ESB um byggðamál

Fylgibréf fastafulltrúa Póllands sem fer með formennsku hjá Evrópusambandinu

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum