Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. nóvember 2011 Forsætisráðuneytið

Fundur forsætisráðherra með Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur

Forsætisráðherrar Danmerkur og Íslands
Forsætisráðherrar Danmerkur og Íslands

Forsætisráðherra átti í dag fund í danska forsætisráðuneytinu með Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur.

Rætt var um aðildarviðræður Íslands og Evrópusambandsins, en Danir taka við formennsku um áramót í Evrópusambandinu og gegna henni til 30. júní 2012. Sérstaklega er áréttað í stjórnarsáttmála dönsku ríkisstjórnarinnar að hún hyggist styðja með virkum hætti við aðildarferli Íslands að ESB.

Forsætisráðherrarnir ræddu sérstaklega um ferli viðræðnanna á næstu mánuðum, en fyrirséð er að auk þeirra kafla sem opnaðir verða á þessu ári á tímabili formennsku Póllands, verði langflestir samningskaflanna sem eftir eru opnaðir í tíð dönsku formennskunnar. Jafnframt er ljóst að mörgum kaflanna verður einnig lokað á þessum tíma.  

Rætt var um efnahagsmál og nýlegar aðgerðir sem leiðtogar í Evrópu hafa unnið að og samþykktar voru í síðustu viku, m.a. vegna stöðu evrusvæðisins. Jafnframt ræddu forsætisráðherrarnir um stöðu mála varðandi endurreisn efnahagslífsins á Íslandi.

Forsætisráðherra bauð jafnframt danska forsætisráðherranum í heimsókn til Íslands á næsta ári.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum