Hoppa yfir valmynd

Frétt

11. nóvember 2011 Utanríkisráðuneytið

Hrafnhildur Arnardóttir listakona fékk afhent norrænu textílverðlaunin í gærkvöldi

EK-MEDIA-AB-hafnba_ambass
EK-MEDIA-AB-hafnba_ambass

Hrafnhildur Arnardóttir listakona fékk í gær, fimmtudaginn 10. nóvember 2011, afhent hin virtu norrænu textílverðlaun  – The Nordic Award in Textiles 2011.   Hrafnhildur hlýtur verðlaunin fyrir frumleg verk sín úr hári, ekta og gervi.

Gunnar Gunnarsson, sendiherra Íslands í Svíþjóð, afhenti Hrafnhildi verðlaunin við hátíðlega athöfn í Åhaga menningar- og tónlistarhúsinu í Borås, að viðstöddum fjölda gesta.  Mikið var um dýrðir þetta kvöld, en auk verðlaunaafhendingarinnar og hátíðarkvöldverðar hélt sínfóníuhljómsveit Borås borgar tónleika með þáttöku sænska píanóleikarans Robert Wells.

Fyrr um daginn var opnuð einkasýning á verkum Hrafnhildar í textílsafni Borås borgar, sem standa mun til 26. febrúar 2012.

The Nordic Award in Textiles, sem eru stærstu verðlaun sinnar tegundar í Evrópu, er deilt út árlega af stofnuninni Stiftelsen Fokus og eru þau tilkomin fyrir stórt einkafjárframlag árið 2000.  Verðlaunaupphæðin nemur 250.000 sænskum krónum.

Mynd: EK MEDIA AB

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum