Hoppa yfir valmynd

Frétt

17. janúar 2012 Innviðaráðuneytið

Eignamörk við útreikning húsaleigubóta 2012

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga um húsaleigubætur, nr. 138/1997, og 7. gr. reglugerðar um húsaleigubætur, nr. 118/2003, tekur viðmiðunarfjárhæð vegna eignamarka við útreikning húsaleigubóta breytingum 1. janúar ár hvert í samræmi við breytingar á neysluverðsvísitölu. Samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands hækkaði neysluverðsvísitalan um 5,3% frá ársbyrjun 2011 til ársbyrjunar 2012

Frá og með 1. janúar 2012 er uppreiknuð viðmiðunarfjárhæð vegna eignamarka við útreikning húsaleigubóta 6.383.000 krónur.

Með reglugerð nr. 1222/2011 var 3. mgr. 2. gr. reglugerðar um húsaleigubætur, nr. 118/2003, breytt þannig að frá og með 1. janúar 2012 skerðast húsaleigubætur um 1% af árstekjum umfram 2,25 milljónir króna í stað 2 milljóna króna.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum