Hoppa yfir valmynd

Frétt

17. janúar 2012 Dómsmálaráðuneytið

Skilafrestur í hönnunarsamkeppni um fangelsi til 16. apríl

Hönnunarsamkeppni um Fangelsi á Hólmsheiði stendur nú yfir og er skilafrestur tillagna til 16. apríl næstkomandi. Tvö fyrirspurnartímabil fyrir þátttakendur eru í samkeppninni og lýkur því fyrra 30. janúar 2012 en því síðara 26. mars 2012. 

Framkvæmdasýsla ríkisins býður til samkeppninnar fyrir hönd  innanríkisráðuneytisins og Ríkiskaup annast þátttökuskráningu og afhendingu ítargagna. Um er að ræða nýtt gæsluvarðhalds- og móttökufangelsi með deild fyrir kvenfanga, aðstöðu fyrir  afplánun skemmri fangelsisrefsinga og vararefsinga á Hólmsheiði í Reykjavík. Byggingin verður með 56 fangarýmum og  um það bil 3.700 m² að stærð.

Nánari upplýsingar er að finna í samkeppnislýsingu sem er aðgengileg á vef Ríkiskaupa, http://www.rikiskaup.is/ útboðsnúmer 15152. Til að nálgast ítargögn verður að skrá sig til þátttöku á vefnum en gögn verða einnig fáanleg, gegn framvísun staðfestingar á þátttöku og 3.500 króna greiðslu, hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík.

Veitt verða þrenn verðlaun að heildarfjárhæð 10 milljónir króna.  Gert er ráð fyrir að hönnun verði lokið og útboðsgögn tilbúin fyrri hluta árs 2013 og að framkvæmdir hefjist vorið 2013 og þeim verði lokið vorið 2015. Samkeppnin fer fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og er auglýst á EES-svæðinu. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum