Hoppa yfir valmynd

Frétt

17. janúar 2012 Innviðaráðuneytið

Tekju- og eignamörk vegna lánveitinga til leiguíbúða 2012

Í reglugerð um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur, nr. 873/2001, er mælt fyrir um að tekju- og eignamörk samkvæmt reglugerðinni taki breytingum samkvæmt breytingum á vísitölu neysluverðs 1. janúar ár hvert. Jafnframt er mælt fyrir um að félagsmálaráðherra (nú velferðarráðherra) láti árlega reikna út og birta nýjar fjárhæðir.

Við útreikning á tekju- og eignamörkum er miðað við hækkun á neysluverðsvísitölu frá ársbyrjun 2011 til ársbyrjun 2012. Samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands nemur hækkunin 5,3%.

Frá og með 1. janúar 2012 eru uppreiknuð tekju- og eignamörk skv. 23. og 24. gr. reglugerðar um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur, nr. 873/2001, eftirfarandi:

  • Tekjur fyrir einstakling 3.894.000 kr.
  • Tekjur fyrir hvert barn að 20 ára aldri sem býr á heimilinu 652.000 kr.
  • Tekjur fyrir hjón og sambúðarfólk 5.452.000 kr.
  • Eignamörk 4.203.000. kr.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum