Hoppa yfir valmynd

Frétt

25. janúar 2012 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Grein umhverfisráðherra í Fréttablaðinu - Verndun svartfugla

 Eftirfarandi grein Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra um verndun svartfugla birtist í Fréttablaðinu 5. janúar 2012.

Undanfarin ár hafa verið mörgum tegundum svartfugla erfið hér á landi. Mælingar sýna að árleg fækkun álku er um 20%, fækkun langvíu um 7% á ári og stuttnefju um 24%. Viðvarandi brestur hefur verið hjá lundastofninum í nokkur ár og á síðasta ári varð algjört hrun í varpi hans, nema á Norðurlandi.

Vegna þessa skipaði ég starfshóp í september sl. til að gera tillögur um verndun og endurreisn svartfuglastofna. Hópurinn hefur skilað af sér skýrslu sem kynnt var fyrir ríkisstjórn á þriðjudag, en þar er m.a. lagt til að fimm tegundir sjófugla verði friðaðar fyrir öllum veiðum og nýtingu, þ.á m. eggjatínslu, næstu fimm árin. Þessar fimm tegundir eru álka, langvía, stuttnefja, lundi og teista.

Starfshópurinn telur eina helstu orsök hnignunar stofnanna vera fæðuskort. Svartfuglar lifa á sandsílum, fiskitegund sem virðist hafa fært sig til í sjónum umhverfis landið á síðustu árum. Þetta er  mögulega varanleg afleiðing loftslagsbreytinga, en vonandi tímabundin sveifla í lífríki hafsins. Telur hópurinn að tímabundið bann við veiðum muni draga úr fækkun í stofnunum og flýta fyrir endurreisn þeirra. Leggur hópurinn jafnframt til að tíminn verði nýttur til að afla betri upplýsinga um tegundirnar, rannsaka þær og vakta, til þess að bæta megi verndun og sjálfbæra nýtingu þeirra og endurmeta ástandið þegar friðunartímabilinu lýkur.

Þannig háttar um veiðar á þessum fimm tegundum, að þær teljast til hlunnindaveiða í villidýralögunum, þannig að almenn friðunarákvæði laganna ná ekki yfir þær. Starfshópurinn leggur til að þessu ákvæði verði  breytt og umhverfsráðherra geti með nýrri  heimild stýrt veiðunum með reglugerð, líkt og gildir um aðrar fuglategundir. Slík lagabreyting er nauðsynleg forsenda þess að hægt sé að bregðast við erfiðri stöðu svartfuglategundanna með afgerandi hætti.

Brýnt er að almenningur sé vel upplýstur um þróun lífríkisins og náttúrunnar allrar. Þótt skýr lagasetning og öflug vernd séu mikilvæg tæki til að stuðla að viðgangi einstakra stofna er jafnframt nauðsynlegt að samspil manns og náttúrunnar byggi á ábyrgð og þekkingu. 

Tillögur hópsins byggja í meginatriðum á þeirri grundvallarsýn að náttúran eigi að njóta vafans, að ferkari þekkingar sé þörf og að stjórnvöldum beri að taka afstöðu með lífríkinu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum