Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. febrúar 2012 Forsætisráðuneytið

Aukin bjartsýni við tímamót

Fyrir réttum þremur árum, 1. febrúar 2009,  tók minnihlutastjórn Samfylkingarinnar og VG við völdum eftir alvarlegasta fjármálahrun í sögu lýðveldisins. Í þingkosningunum 25. apríl sama ár fengu þessir flokkar skýrt meirihlutaumboð frá kjósendum.

Að liðnum þessum þremur árum  leggja landsmenn land undir fót, bjartsýnni en þeir hafa verið síðan fyrir hrun. Ný væntingavísitala Gallups, sem birt var í gær, staðfestir þetta. Sú vísitala hækkaði í nýliðnum mánuði um 7,5 stig og hefur ekki verið hærri frá því í september 2008. Þetta eru góðar fréttir þar sem ætla má að aukin bjartsýni og vilji til að fjárfesta og ráða fólk til starfa haldist í hendur.

Í fyrstu virtust verkefni okkar nær óyfirstíganleg og sá möguleiki var fyrir hendi að þjóðin yrði gjaldþrota ef ekki yrði hið bráðasta og af einurð tekist á við vandann. Bölsýni og gremja fór vaxandi meðal almennings þegar hrunið og kreppan tók að herða að fyrirtækjum og heimilum.

Sem gefur að skilja reyndi þetta á bein tveggja ungra flokka, Samfylkingarinnar og VG, sem báðir voru stofnaðir fyrir 12 til 13 árum. Varla var heldur við því að búast að margir vörslumenn sérhagsmuna í landinu yrðu sérlega hrifnir þegar þeir lásu samstarfsyfirlýsingu fyrstu hreinræktuðu ríkisstjórnar jafnaðar-, umhverfis- og vinstristefnu: Norrænt velferðarsamfélag skyldi vera leiðarljós, sjálfbær þróun, félagslegt réttlæti og jöfnuður og opin og skilvirk stjórnsýsla samfara lýðræðisumbótum. Ýmislegt hefur gengið á; kvarnast hefur úr röðum liðsheildarinnar, sem átti hlut að samstarfsyfirlýsingu okkar í upphafi, en aðrir hafa gengið til liðs við okkur. En mótlætið og margvísleg og snúin viðfangsefni hafa fært okkur dýrmæta reynslu. Þegar hér er komið sögu efumst við ekki um að takast muni að ljúka stórum og mikilvægum viðfangsefnum á þeim tíma sem eftir lifir kjörtímabilsins. Við erum bjartsýn og í sóknarhug, eins og þjóðin, enda betri tíð í vændum.

Ástæða til bjartsýni

Endurreisn bankakerfisins og skuldaúrvinnsla fyrirtækjanna skapar svigrúm sem mun hleypa auknum krafti í atvinnulífið. Hagvöxtur reynist meiri en spáð var, líklega 3,5 til 4 prósent á síðasta ári. Hann gæti hæglega orðið 2,5 til 3 prósent á þessu ári en til samanburðar er því spáð að hann verði 1,5 prósent að jafnaði innan Evrópusambandsins. Ytri skilyrði geta vitanlega dregið úr vilja til fjárfestinga vegna þrálátra hremminga alþjóða fjármálakerfisins. En á móti slíku vega að mörgu leyti hagstæðar aðstæður innanlands. Benda má á vaxandi loðnukvóta sem er góður búhnykkur og skilar milljörðum inn í hagkerfi okkar.  Full ástæða er þó til þess að vera á varðbergi gagnvart tímabundnum vexti verðbólgu.

Miklar orkuframkvæmdir eru hafnar eða í þann mund að hefjast, við Búðarháls, á Norðaustursvæðinu og á Suðvesturhorninu. Framvindan ræðst af þeim samningaviðræðum sem þegar eru hafnar við fjölbreyttan hóp fjárfesta sem sýnt hafa landinu áhuga. Á annan tug fjárfestingarsamninga er til skoðunar eða hafa verið undirritaðir og koma brátt til framkvæmda.

Á næstunni verða stigin tvö mikilvæg skref í afnámi gjaldeyrishaftanna. Annars vegar er um að ræða næsta gjaldeyrisútboð Seðlabanka Íslands en hins vegar fyrsta fjárfestingarútboðið sem ætlað er að laða erlendar fjárfestingar til landsins samfara flutningi á aflandskrónum inn í landið. Matsfyrirtækið Fitch gat þess í ársbyrjun að takist útboðin vel komi til greina að lyfta Íslandi í fjárfestingarflokk. Fari svo væri Ísland á nýjan leik metið í fjárfestingaflokki af öllum stóru matsfyrirtækjunum og eitt þeirra breytti nýlega horfum Íslands úr neikvæðum í stöðugar.

Lýðræði og auðlindir

Innan fárra vikna er stefnt að framlagningu frumvarps um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu sem tryggja á landsmönnum forræði yfir auðlindum sjávar og að þeir njóti eðlilegrar rentu af þeim. Sjávarútvegi hefur vegnað vel undanfarin misseri og hefur eigið fé greinarinnar tvöfaldast á milli ára. Þetta er margþætt mál og breytingar gera ríkar kröfur til allra um samstarfsvilja.

Rammaáætlun um verndun og nýtingu vatnsafls og jarðvarma verður vonandi samþykkt á Alþingi innan tíðar. Með innleiðingu Árósarsamningsins, friðlýsingum svæða og mörgum fleiri aðgerðum hefur verið brotið í blað í umhverfismálum. Þá er í undirbúningi stofnun auðlindasjóðs.

Við ætlum okkur að ljúka endurskoðun stjórnarskrárinnar og koma í veg fyrir að sú merkilega lýðræðistilraun, sem við höfum beitt okkur fyrir, renni út í sandinn. Alþingi hefur til þessa reynst þetta gagngera umbótastarf um megn. Umbætur á svið lýðræðis- og mannréttindamála hafa verið og verða áfram eitt af forgangsverkefnum ríkisstjórnarinnar.

Varanlegan bata

Enginn þarf að velkjast í vafa um að þjóðin á síðasta orðið um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Samkvæmt ákvörðun meirihluta Alþingis er nú verið að kanna til fullnustu kosti og galla aðildar. Afstaða stjórnarflokkanna til aðildar er ólík en  virðing og umburðarlyndi fyrir ólíkum skoðunum er einmitt nauðsynleg í stórmálum sem þessu.

Það ætti ekki heldur að þurfa að vefjast fyrir neinum að ríkisstjórn jafnaðar-, umhverfisverndar og vinstristefnu leggur sig fram nú sem endranær um að verja félagslegt réttlæti og jöfnuð. Meðal mikilvægra verkefna á þessu sviði er að vinna áfram að því að afla haldbærra gagna um skuldastöðu heimilanna eða einstakra hópa. Aðeins á slíkum grundvelli er hægt að útfæra áframahaldandi stuðning við fjölskyldur í vanda. Heildarendurskoðun almannatryggingakerfisins er enn eitt forgangsverkefnið sem mikilvægt er að ljúka á kjörtímabilinu.

Margar nágrannaþjóðir spyrja sig nú hvernig það megi vera að Íslendingum hafi tekist á svo skömmum tíma að fóta sig eftir stórfellt efnahagshrun. Mest er um vert að sýna fram á að batinn er hafinn og hefur allar forsendur til þess að verða varanlegur. Einnig að dýpri og frekari umbreytingar á þjóðfélaginu eiga enn eftir að bæta mannlífið og kjörin í landinu.

Jóhanna Sigurðardóttir formaður Samfylkingarinnar

Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum