Hoppa yfir valmynd

Frétt

5. mars 2012 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Óskað eftir tilnefningum til Kuðungsins 2011

Kuðungurinn
Kuðungurinn

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfisráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðugt að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2011.

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur sem er tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

Kuðungurinn er viðurkenning á framlagi fyrirtækja og stofnana til umhverfismála sem veitt er árlega. Umhverfisráðuneytið veitti Kuðunginn fyrst árið 1995, þá fyrir starf á árinu 1994. Þau fyrirtæki sem hafa hlotið viðurkenninguna hingað til eru:

  • 2010 - Farfuglaheimilin í Reykjavík.
  • 2009 - Oddi.
  • 2008 - Íslenska Gámafélagið.
  • 2007 - Sólarræsting.
  • 2006 - Bechtel.
  • 2005 - Línuhönnun.
  • 2004 - Orkuveita Reykjavíkur.
  • 2003 - Hópbílar.
  • 2002 - Árvakur.
  • 2000 - Íslenska álfélagið.
  • 1999 - Borgarplast.
  • 1998 - Fiskverksmiðja Haraldar Böðvarssonar á Akranesi.
  • 1997 - Olíufélagið.
  • 1996 - Fiskverfkun KEA í Hrísey.
  • 1995 - Prentsmiðja Morgunblaðsins.
  • 1994 - Umbúðamiðstöðin, Gámaþjónustan og Kjötverksmiðjan Goði.

Í úthlutunarnefnd Kuðungsins sitja Sigþrúður Jónsdóttir formaður, skipuð af umhverfisráðherra, Guðmundur Gunnarsson fyrir hönd Alþýðusambands Íslands, Guðfinnur G. Johnsen fyrir hönd Samtaka atvinnulífsins og Jóna Fanney Friðriksdóttir fyrir hönd félagasamtaka á sviði umhverfismála.

Tillögur skulu berast umhverfisráðuneytinu eigi síðar en sunnudaginn 25. mars n.k. merktar ,,Kuðungurinn” á póstfangið [email protected] eða með pósti í umhverfisráðuneytið, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum