Hoppa yfir valmynd

Frétt

16. mars 2012 Heilbrigðisráðuneytið

Bjarni Jónasson settur forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur sett Bjarna Jónasson forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri til 1. febrúar 2013 en þá lýkur námsleyfi Halldórs Jónssonar forstjóra.  

Ákvörðun ráðherra er í samræmi við mat nefndar sem metur hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu. Umsækjendur um stöðuna voru fjórir auk Bjarna sem nefndin mat hæfastan. Bjarni hefur verið starfsmannastjóri Sjúkrahússins á Akureyri frá 2007 og þar á undan verkefnastjóri gæðamála og stefnumótunar frá 2005. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum