Hoppa yfir valmynd

Frétt

20. mars 2012 Dómsmálaráðuneytið

Drög að lagafrumvarpi um sýslumenn kynnt

Innanríkisráðuneytið kynnir nú drög að lagafrumvarpi þar sem lagt er til að sýslumannsembættum landsins verði fækkað úr 24 í 8. Samhliða þessu er með frumvarpi um breytingar á lögreglulögum lagt til að löggæsla verði skilin frá starfsemi sýslumanna og að stofnuð verði sex ný lögregluembætti og að þau verði alls átta.

Frumvarpið er samið í innanríkisráðuneytinu. Óhjákvæmilegt er að saman fari endurskipulagning á skipan sýslumannsembætta í landinu og breytingar á skipan lögreglumála. Frumvarp þetta er í veigamiklum atriðum efnislega samhljóða tillögum sem settar voru fram í skýrslu sem Þorleifur Pálsson, fyrrverandi sýslumaður, samdi á árinu 2010 að beiðni ráðuneytisins og fjallaði um tillögur að breytingum á skipan sýslumannsembætta í landinu.

Helstu breytingar sem lagðar eru til með frumvarpi þessu eru eins og áður sagði þær að sýslumannsembættum verður fækkað úr 24 í 8. Stjórnsýsluumdæmin verði Vesturland, Vestfirðir, Norðurland vestra, Norðurland eystra, Austurland, Suðurland, Suðurnes og höfuðborgarsvæðið. Þetta er sama umdæmaskipting og lagt er til að gildi fyrir löggæsluna í landinu skv. nýju frumvarpi þar að lútandi. Með sameiningu sýslumannsembættanna verða til öflugri þjónustustofnanir sem standa betur að vígi til þess að sinna hlutverki sínu og taka að sér aukin verkefni.

Gengið er út frá því að skipulagsbreyting sem í frumvarpinu felst og áform um stofnun nýrra lögregluembætta samkvæmt lögreglulögum hafi ekki í för með sér miklar breytingar á húsnæði. Í öllum tilvikum yrði leitast við að nýta núverandi húsnæði sýslumanna eins og mögulegt er, bæði undir starfsemi sýslumanns sem og lögreglu ef því verður við komið. Með því að skipuleggja ný embætti bæði sýslumanna og lögreglu á sama tíma, er hægt að stuðla að því að það húsnæði sem er til staðar, verði nýtt á sem bestan hátt til að lágmarka kostnað.

Breyting taki gildi 2015

Frumvarpið kveður á um að hið nýja skipulag taki gildi árið 2015 og því gefst góður tími til að undirbúa innra skipulag hinna nýju embætta, þjónustu þeirra og starfsemi að öllu leyti. Að mótun þess munu allir starfsmenn embættanna koma í því stefnumótunarferli sem er hafið af hálfu innanríkisráðuneytisins.

Frumvarpið gerir ráð fyrir að hægt sé að stíga ákveðin skref í átt að hinu nýja skipulagi fyrr, t.d. með sameiningu embættisverka tveggja eða fleiri embætta þar sem sami sýslumaður gegnir embættunum, eða með sameiningu, sé slík leið fær sbr. ákvæði til bráðabirgða.

Hvað starfsmenn varðar er gert ráð fyrir því að þeim verði öllum boðið starf hjá nýjum embættum, sem taka við öllum réttindum og skyldum hinna gömlu embætta. Sýslumenn hinna nýju embætta verða valdir úr hópi starfandi sýslumanna, öðrum verða boðin störf við hin nýju embætti.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum