Hoppa yfir valmynd

Frétt

12. apríl 2012 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

16. apríl: Opinn fundur um Ríó+20 ráðstefnuna um sjálfbæra þróun

Merki Ríó+20 ráðstefnunnar
Merki Ríó+20 ráðstefnunnar

Opinn fundur um Ríó+20, ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, verður haldinn mánudaginn 16. apríl næstkomandi. Ríó+20 fer fram í júní nk. í Ríó de Janeiro í Brasilíu, þar sem ráðherrar og þjóðarleiðtogar munu fylgja eftir því starfi sem unnið var fyrir 20 árum í sömu borg. Á ráðstefnunni verður áhersla m.a. lögð á endurnýjuð pólitísk heit og græna hagkerfið sem leið að sjálfbærri þróun.

Yfirskrift fundarins á mánudag er „Leiðin til Ríó: Sjálfbær þróun og tækifæri græns hagkerfis“ en að honum standa utanríkisráðuneyti, umhverfisráðuneyti, Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun og þverfræðilegar rannsóknir, Alþjóðamálastofnun og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra, ávarpar fundinn og tekur þátt í pallborði í lok hans, en hún mun leiða íslensku sendinefndina á Ríó+20 í sumar. Auk hennar flytja erindi Auður Ingólfsdóttir sviðstjóri á félagsvísindasviði Háskólans á Bifröst undir yfirskriftinni „Hverju breytti Ríófundurinn '92 – hin grýtta leið frá hugmyndum til breyttrar hegðunar“, Ragnheiður Elfa Þorsteindóttir frá utanríkisráðuneytinu gefur innsýn í undirbúning Íslands og samningaviðræður vegna Ríó+20, Dr. Jón Ágúst Þorsteinsson framkvæmdastjóri Marorku flytur erindi um tækifæri græns atvinnulífs og  Lúðvík E. Gústafsson um Ríó+20 og sjálfbæra þróun frá sjónarhóli sveitarfélaganna. Skúli Helgason formaður nefndar Alþingis um græna hagkerfið flytur erindi og loks mun Árni Finnson fara yfir væntingar frjálsra félagasamtaka til Rio+20.

Fundarstjóri verður Dr. Guðrún Pétursdóttir.

Í lok fundarins munu fara fram pallborðsumræður með þátttöku allra stjórnmálaflokka. Fundurinn fer fram í stofu 101 í Odda í Háskóla Íslands, frá klukkan 09:00-12:00. Allir velkomnir.

Dagskrá

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum