Hoppa yfir valmynd

Frétt

12. apríl 2012 Utanríkisráðuneytið

Kynning á umsóknarferli fyrir stöður hjá Sameinuðu þjóðunum

Í næstu viku munu tveir fulltrúar mannauðsskrifstofu SÞ í New York kynna fyrir áhugasömum langt og umfangsmikið umsóknarferli fyrir stöður hjá alþjóðastarfsliði SÞ. Kynningarfundirnir verða haldnir í utanríkisráðuneytinu, Rauðarárstíg 25, mánudaginn 16. apríl kl. 14:00-17:00 og þriðjudaginn 17. apríl kl.14:00-17:00. Áhugasamir geta skráð sig fyrir 12. apríl með tölvupósti á póstfangið [email protected] með upplýsingum
um nafn auk menntunar og ósk um hvor fundurinn verður sóttur.

Hvor fundur stendur í þrjár klukkustundir og fara fulltrúarnir í gegnum
gerð ferilskrár, útfyllingu umsókareyðublaða, tilhögun atvinnuviðtala og
sitja fyrir svörum. Sótt er um störf hjá SÞ á heimasíðunni careers.un.org.

Almenn skilyrði til umsókna hjá SÞ eru háskólamenntun, helst
meistarapróf. Enska og franska eru opinber tungumál SÞ og er krafist
þess að umsækjendur tali annað hvort tungumálið reiprennandi.
Tungumálaþekking í öðrum tungumálum er kostur.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum