Hoppa yfir valmynd

Frétt

23. apríl 2012 Utanríkisráðuneytið

Andagiftir Íslands – Frá fornsögum til skáldsagna

Bókmenntasýningin Frá opnun sýningarinnar Andagiftir Íslands – Frá fornsögum til skáldsagna
Bókmenntasýningin Frá opnun sýningarinnar Andagiftir Íslands – Frá fornsögum til skáldsagna

Bókmenntasýningin Andagiftir Íslands – Frá fornsögum til skáldsagna („Fabulous Iceland: From Sagas to Novels”) sem ræðir uppsprettu andagiftar íslenskra bókmennta, opnaði í Lincoln Center s.l. fimmtudag rétt í þann mund sem kvikmyndaröðin Myndir af hjara veraldar –  sígildar- og nýjar íslenskar kvikmyndir (Images from the Edge: Classic and Contemporary Icelandic Cinema) opnar, en hún stendur frá 18. - 26. apríl. Pétur Blöndal blaðamaður tók röð viðtal við 23 íslenska höfunda þar sem hann bað þá að lýsa tengslum þeirra við íslenska bókmenntahefð og áhrif hennar á verk þeirra.  Afraksturinn er samantekt íslenskrar bókmenntasögu í stuttum viðtölum með portrett ljósmyndum Kristins Ingvarssonar.

Íslensk frásagnahefð nær allt aftur fyrir miðaldir og skín oft skýrt í gegn í íslenskum nútímabókmenntum. Íslendingar hafa náð því að viðhalda bókmenntahefð sinni vegna þess að þeir hafa varðveitt hina íslensku tungu lítið breytta í gegnum aldirnar ásamt geysilegu magni persónulýsinga, sagna, frásagnarhefða og svipmynda sem varðveist hafa í hinum fornu sögum. Í þessum áhrifum er fólgin rík bókmenntahefð fyrir nýja höfunda að vinna úr.

Frá opnun sýningarinnar Andagiftir Íslands – Frá fornsögum til skáldsagna„Það hefur alltaf heillað mig að heyra hvert rithöfundar sækja andagiftina,” segir Pétur Blöndal. „Í íslenskum bókmenntum getur hún teygt sig aftur um nokkrar aldir í fornsögurnar eða til nýliðinnar aldar í verkum nóbelskáldsins, Halldórs Kiljans Laxness. Einnig getur hressandi skemmtanalíf ungra listamanna hafa skipt öllu máli.  Það er fjölbreyttur tónn í sögum þessara höfunda frá kynslóð til kynslóðar og vonandi verða þeir nýjum höfundum hvatning.”

Á sýningunni eru 23 íslenskir rithöfundar sem segja sögur af andagift sem bókmenntir veita þeim í stuttum frásögnum undir ljósmyndum þeirra. Þessi sýning veitir gestum innsýn í íslenskar samtímabókmenntir, rætur þeirra og uppruna sem og sjónarhorn á íslensku fornsögurnar.  Jafnframt er Reykjavík sem bókmenntaborg UNESCO sérstaklega kynnt á sýningunni svo og er sérstök kynning á handritunummeð tilvísun í alþjóðlega þýðingu þeirra, en þessar merku menjar eru nú skráðar á heimsmenjaskrá UNESCO.  Opnun sýningarinnar verður 19. apríl í Frieda and Roy Furman Gallery, Lincoln Center í New York borg. 

Iceland Naturally setur sýninguna upp í samstarfi við mennta- og menningarmálaráðuneytið, utanríkisráðuneytið, Reykjavíkurborg og Stofnun Árna Magnússonar með stuðningi frá Icelandair Cargo, Eimskip og Odda.  Gert er ráð fyrir að sýningin fari næst til Seattle og þaðan til Kanada og endi í Washington, DC árið 2013.

Tengiliður við fjölmiðla er Hlynur Guðjónsson, ræðismaður og viðskiptafulltrúi í New York, [email protected], 545 7766

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum