Hoppa yfir valmynd

Frétt

2. maí 2012 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ráðstefna um erfðabreytta ræktun

Kornakur.
Kornakur.

Umhverfisráðuneytið efnir til ráðstefnu um erfðabreytta ræktun þar sem fjallað verður um sleppingu og dreifingu erfðabreyttra lífvera út í umhverfið. Fyrirlesarar á ráðstefnunni verða úr röðum íslenskra vísindamanna og sérfræðinga á þessu sviði auk þess sem sérfræðingur danska umhverfisráðuneytisins mun fjalla um stefnu og stjórnsýslu í málefnum erfðabreyttrar ræktunar innan Evrópusambandsins og í Danmörku.

Mikil umræða hefur verið að undanförnu um erfðabreytta ræktun, og þá sérstaklega sleppingu og dreifingu erfðabreyttra lífvera út í umhverfið. Þetta á ekki síst við lönd Evrópusambandsins þar sem skoðanir eru skiptar en nokkur Evrópuríki hafa bannað slíka ræktun innan eigin landamæra.  Með ráðstefnunni vill umhverfisráðuneytið stuðla að opinni og upplýstri umræðu um þessi mál hér á landi og gefa almenningi kost á að fylgjast með stöðu og þróun mála.

Á ráðstefnunni verður m.a. útskýrt í hverju erfðabreytt ræktun felst, farið verður yfir þau lög og reglur sem gilda um erfðabreytta ræktun hér á landi, hlutverk Umhverfisstofnunar í þessu sambandi verður útskýrt sem og hlutverk ráðgjafanefndar um erfðabreyttar lífverur. Þá verða flutt erindi um áhrif erfðabreyttrar ræktunar á heilsu, umhverfi og efnahag  og loks velt upp siðferðislegum spurningum sem kunna að vakna í tengslum við málefnið.

Meðal fyrirlesara verður Ole Kaae í danska umhverfisráðuneytinu, en hann hefur sérhæft sig í umhverfisvernd með sérstakri hliðsjón af erfðatækni og tekið virkan þátt í samstarfi Evrópuríkjanna á þessu sviði.

Ráðstefnan verður haldin í Hvammi á Grand Hóteli í Reykjavík, þriðjudaginn 15. maí 2012 kl. 13 - 17. Hún er öllum opin og er aðgangur ókeypis.

Upptökur af erindum

Setning

Magnús Jóhannesson, ráðstefnustjóri. Upptaka.

Ávarp

  • Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra. Upptaka.

Erfðatækni og erfðabreytt ræktun

  • Kristinn P Magnússon, prófessor við Háskólann á Akureyri og sérfræðingur við Náttúrufræðistofnun Íslands. Upptaka.

GM-crops - Policy and administration in the EU and Denmark

  • Ole Kaae, sérfræðingur í danska umhverfisráðuneytinu. Upptaka.

Löggjöf á Íslandi um erfðabreytta ræktun - Glóey Finnsdóttir, lögfræðingur í umhverfisráðuneytinu. Upptaka.

Hlutverk Umhverfisstofnunar

  • Sigrún Ágústsdóttir, sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun. Upptaka.

Hlutverk ráðgjafanefndar um erfðabreyttar lífverur

  • Sigríður Helga Þorbjarnardóttir,  nefndarfulltrúi. Upptaka.


Eru áhrif erfðabreyttrar ræktunar þekkt:

  • á heilsu? Eiríkur Steingrímsson, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands. Upptaka.
  • á umhverfi? Ásgeir Björnsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun. Upptaka.
  • á þjóðfélag og efnahag? Daði Már Kristófersson, dósent við Hagfræðideild félagsvísindasviðs Háskóla Íslands. Upptaka.

Erfðabreyttar lífverur - siðfræðileg viðhorf

  • Þorvarður Árnason, forstöðumaður Rannsóknarseturs Háskóla Íslands á Hornafirði. Upptaka.

Umræður og fyrirspurnir

Samantekt og ráðstefnuslit

  • Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra. Upptaka.


Dagskrá ráðstefnu um erfðabreytta ræktun, sleppingu og dreifingu.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum