Hoppa yfir valmynd

Frétt

24. maí 2012 Forsætisráðuneytið

Rétti tíminn til að nota arðinn til uppbyggingar

„Fjárfestingaáætlunin er liður í áframhaldandi sókn eftir efnahagshrunið og ætlað að styðja við efnahagsbata og hagvöxt. Þótt margt hafi áunnist í efnahagsmálum er áfram slaki í efnahagslífinu, sem sést á því að atvinnuleysið er 6-7% og hagvöxturinn er 2,5-3%.  Meðan þessi slaki er fyrir hendi er  skynsamlegtað verja hluta þeirra fjármuna sem bundnir hafa verið í bönkum og hluta auðlindagjalda til uppbyggingar innviða samfélagsins.“ Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, við upphaf sérstakrar umræðu um fjárfestingaráætlun ríkisstjórnarinnar sem kynnt var 18. maí síðstliðinn. Jafnframt lagði hún áherslu á að með áætlunni yrði sjálfbær hagvöxtur styrktur og sömuleiðis tekjugrunnur ríkissjóðs.

Aðeins hluti áætlaðra tekna af veiðileyfagjaldi, arði úr bönkunum og sölu eignarhluta ríkisins í þeim verður notaður til að fjármagna þau verkefni sem nefnd eru í áætluninni. Alls er ráðgert að verkefnin leiði til fjárfestinga fyrir um 88 milljarða króna. Um 39 milljarðar króna koma úr áætluninni sjálfri, þar af 17 milljarðar króna af sérstöku veiðigjaldi og leigu aflahlutdeilda og 22 milljarðar króna af arði og eignasölu hluta ríkisins í bönkunum. 
Skýrsla forsætisráðherra er hér birt í heild sinni:

Fjárfestingaráætlun:

Skýrsla forsætisráðherra á Alþingi 24. maí 2012

Frú forseti
Fjárfestingaáætlunin sem kynnt var í síðustu viku hvílir á mörgum styrkum stoðum, stefnumörkun um Ísland 2020,  græna hagkerfið, stefnumörkun Vísinda- og tækniráðs og markmiðum í ríkisfjármálum. Að mótun þessara stefna hafa fjölmargir komið  og fyrir það skal þakka. Fjármögnunin byggir annars vegar á þeirri framtíðarsýn sem Bankasýsla ríkisins hefur nýverið kynnt og frumvörpum um stjórn fiskveiða hins vegar.

Fjárfestingaáætlunin er liður í áframhaldandi sókn eftir efnahagshrunið og ætlað að styðja við efnahagsbata og hagvöxt.  Þótt margt hafi áunnist í efnahagsmálum er áfram slaki í efnahagslífinu, sem sést á því að atvinnuleysið er 6-7% og hagvöxturinn er 2,5-3%.  Meðan þessi slaki er fyrir hendi er  skynsamlegt að verja hluta þeirra  fjármuna sem bundnir hafa verið í bönkum og hluta auðlindagjalda til uppbyggingar  innviða samfélagsins.

Þannig styrkist undirstaða sjálfbærs hagvaxtar og  tekjugrunnur ríkissjóðs til framtíðar. Lagðar eru nýjar áherslur í atvinnumálum um skapandi greinar, ferðaþjónustu, nýsköpun,  rannsóknir og græna hagkerfið.,  Sú atvinnustefna sem fjárfestingaáætlunin grundvallast á er fjölbreytt og því eðlisólík stóriðjueinstefnunni sem margir eru enn fastir við. 

Hér er um afmarkaða fjárfestingaáætlun að ræða sem fjármögnuð verður með skilgreindum hætti. Þetta er til viðbótar við  fjölda fjárfestingaverkefna sem ýmist eru þegar í gangi eða langt komin m.a. Búðarhálsvirkjun, Landspítalinn, hjúkrunaheimili víða um land og námsmannaíbúða.

Samkvæmt spá Hagstofunnar hækkar hlutfall fjárfestinga af landsframleiðslu í 15,2% á þessu ári og í 16% á því næsta, sem er aukning frá 2010 um 3,2 prósentustig. Með fyrirliggjandi fjárfestingaráætlun má gera ráð fyrir að hlutfall fjárfestinga af landsframleiðslu hækki um 1,4 prósentustig á næsta ári og verði 17,5% og um 2% á árinu 2014 og verði 19,1%. Hefur hlutfall fjárfestinga af landsframleiðslu þá hækkað um 4% á tveimur árum.

Hæstvirtur forseti
Áætlunin felur í sér verkefni sem leiða munu til fjárfestinga fyrir um 88 ma.kr., en þar af er gert ráð fyrir að 39 ma. verði fjármagnaðir úr fjárfestingaáætluninni. Fjármögnun er tvíþætt. Annars vegar er ráðgert að 17 milljarðar komi af sérstöku veiðigjaldi og leigu aflahlutdeilda, og eru þau áform með fyrirvara um samþykkt fyrirliggjandi frumvarpaum fiskveiðistjórnun og veiðigjöld sem nú er til umfjöllunar á Alþingi. Alls má gera ráð fyrir að aukin veiðigjöld skili milli 40 og 50 milljörðum króna næstu þrjú ár.

Hins vegar koma 22  milljarðar af arði og eignarsölu hluta ríkisins í bönkum, skv. framtíðarsýn Bankasýslu ríkisins og eru með fyrirvara um að þær hugmyndir gangi eftir.  Ætla má að allt að 75 milljarðar komi í hlut ríkisins úr bönkunum næstu þremur árum.  Ríkið hefur lagt bönkunum til mikið fé. Reikningar þeirra sýna að  ríkið getur farið að losa um þá fjármuni meðal annars til atvinnuuppbyggingar.

Samanlagt er hér gert ráð fyrir að allt að ríkið fái allt 125 milljörðum í tekjur af eignarhlut í bönkunum og veiðigjaldinu á næstu þremur árum. Af þessari fjárhæð er ætlunin að verja rúmum 30% til fjárfestingaráætlunarinnar og afganginum, 70%, verður hægt að verja meðal annars til að treysta hag ríkissjóðs og greiða niður skuldir. 

Hæstvirtur forseti
Hluta sérstaks veiðigjalds verður varið í fyrsta lagi til samgöngumála. Þar er um að ræða 2,5 milljarða króna árlegt viðbótarframlag til samgönguáætlunar/jarðgangaáætlunar til næstu 10 ára. Þetta skapar svigrúm til að að flýta framkvæmdum við  Norðfjarðargöng og Dýrafjarðargöng um þrjú ár og í kjölfarið ráðast fyrr en ella í byggingu annarra arðbærra mannvirkja.

Í öðru lagi fer hluti veiðigjalds til að efla rannsókna- og tækniþróunarsjóði og fjárframlag til þeirra verður tvöfaldað. 

Í þriðja lagi verður varið 1,2 milljörðum til atvinnuþróunar og sóknaráætlana á vegum landshlutasamtaka. Reynslan hefur verið mjög góð af sóknaráætlunum landshluta og þar hefur verið brotið  blað í samskiptum ríkis og sveitarfélaga um mótun atvinnuuppbyggingar um land allt.

Verkefni sem fjármögnuð verða af arði og sölu eignarhluta í bönkunum eru tvenns konar; annars vegar framlög til uppbyggingar vaxandi atvinnugreina og hins vegar verklegra  framkvæmda.

Verkefni eru valin með tilliti til þess að auka sem mest sjálfbæran hagvöxt til skamms- og langstíma. Varðandi framkvæmdir er lögð áhersla á verkefni sem eru langt komin í hönnun og undirbúningi. Þá er einnig haft í huga að verkefni leiði ekki til skuldbindinga um framtíðarrekstur. Jafnframt er tekið mið af verkefnum sem laða munu fram fjármagn frá einkaaðilum og öðrum opinberum aðilum. Þær atvinnugreinar sem sérstaklega eru studdar eru ferðaþjónusta, skapandi greinar, og græna hagkerfið.

Ráðist verður í uppbyggingu ferðamannastaða og innviða á friðlýstum svæðum og varið í þessu skyni 250 m.kr. á ári. Sjónum hefur í auknum mæli verið beint að skapandi greinum og öllum  er nú ljóst að menning er atvinnugrein, þróttmikil atvinnugrein með mikla vaxtamöguleika. 

Alls er gert ráð fyrir að til skapandi greina verði lagðar 2,8 milljarðar króna á þriggja ára tímabili. Meðal annars verða framlög til Kvikmyndasjóðs aukin með myndarlegum hætti.  Þá verður rafræn stjórnsýsla efld sem kemur hugbúnaðargreinum til góða.

Áherslna á græna hagkerfið gætir nú víða um heim og þær sjást hvarvetna í áætlunum  ríkja um aukinn hagvöxt, en Alþingi hefur nýlega samþykkt  þingsályktunartillögu þar um. Markmiðið er að leggja grunn að  grænum og sjálfbærum  hagvexti.

 Tæpum fjórum milljörðum er áformað að verja til sex verkefna á þessu sviði. Þar nefni ég fimm ára átak til að auka erlendar fjárfestingar í grænni atvinnustarfsemi, grænan fjárfestingasjóð, endurgreiðslu á kostnaði við að gera  fyrirtæki umhverfisvæn, vistvæn innkaup, orkuskipti í skipum og ívilnun til eigenda hreinorkubíla.

Áætlunin gerir ráð fyrir að til bygginga og viðhalds verði varið um 13 milljörðum króna. Engin atvinnugrein fór eins illa út úr hruninu og byggingariðnaðurinn og atvinnuleysi er enn mjög mikið meðal iðnaðar- og byggingaverkafólks.

Við núverandi aðstæður má  ná hagstæðum samningum sem auka arðbærni verkefna. Jafnframt má benda á að lágt gengi krónunnar nú um stundir hefur í för með sér auknar líkur á því að innlendir verktakar komi að framkvæmdum. Flýting framkvæmda leiðir þannig til meiri verðmætasköpunar innanlands en ella.

Helstu verkefnin sem um er að ræða eru að flýta viðhaldsverkefnum á fasteignum ríkisins, bygging  húss íslenskra fræða, Menntavísindasvið Háskóla Íslands, fimmti áfangi Háskólans á Akureyri og nýtt fangelsi. Loks vil ég geta um fjármögnun á nýjum Herjólfi í samstarfi við heimamenn og endurbætur á Landeyjarhöfn.

Hæstvirtur forseti
Ég hef hér farið yfir helstu þætti í fjárfestingaáætluninni. Eins og allir sjá er hér um metnaðarfulla en þó varfærna áætlun að ræða og mikilvægt innlegg til endurreisnarinnar. Miklu skiptir að efnahagsáhrifin séu metin, metin af raunsæi. Fjárfestingaáætlunin svarar til  um 2,3% af áætlaðri landsframleiðslu að meðaltali árin 2013 til 2015.

Rétt er að taka fram að hér er eingöngu miðað við ráðstöfun opinberra fjármuna en ekki tekið tillit til fjárfestinga einkaaðila sem áætlunin leiðir af sér. Þar skiptir langmestu áætlunin um byggingu  leiguíbúða, sem svarar til um 40 ma.kr. fjárfestingar. Aukin framlög til samkeppnissjóða kalla einnig fram samsvarandi framlög fyrirtækja og þá leggur Háskóli Íslands til happdrættisfé til framkvæmda.  Að teknu tilliti til þessa er heildar fjárfestingaáætlunin upp á 88 ma.kr., eða ríflega 5% af landsframleiðslu á áætlunartímanum. 

Þegar allt er talið má ætla að áætlunin skapi um 4.000 störf. Ef notuð er sama mælistika og í ýmsum nýlegum skýrslum og athugunum gætu bein, óbein og afleidd störf verið um 11.000. Við mat á þjóðhagslegu áhrifum var notað þjóðhagslíkan líkt því sem Seðlabankinn og Hagstofa Íslands hafa yfir að ráða. 

Áhrif áætlunarinnar eru þau að fjárfesting og landsframleiðsla aukast verulega. Atvinnuleysi lækkar á spátímanum um allt að ½%. Færa má rök fyrir því að áhrifin á atvinnuleysi kunni að vera vanmetin, sem áður greinir, einkum vegna þess að mikið atvinnuleysi er enn í byggingariðnaði.

Áætlað er að  að tekjur ríkissjóðs gætu aukist um 16,9 ma.kr. alls á þremur árum. Til viðbótar minnka útgjöld vegna minna atvinnuleysis og gætu þar verið um að ræða 2-3 ma.kr. sparnað. Samanlagt hefur áætlunin í för með sér að bæta hag ríkissjóðs um 19-20 milljarða króna á næstu þremur árum.

Frú forseti
Ég tel að nú sé rétti tíminn fyrir metnaðarfulla og djarfa sóknaráætlun, eins og hér er til umræðu. Við erum einfaldlega komin á ákveðin vendipunkt. Hagvöxtur er að glæðast og  atvinnuleysið minnkar.  Nú sjáum við fram á að geta endurheimt fjármuni sem lagðir voru í bankana og sanngjarnt gjald af fiskveiðiauðlindinni er nú í augsýn.

Nú er því rétti tíminn til að skila þessum arði til þjóðarinnar í atvinnuuppbyggingu og bættum lífskjörum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum