Hoppa yfir valmynd

Frétt

30. maí 2012 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Úthlutun á styrkjum úr Veiðikortasjóði 2012

Rjúpa
Rjúpa

Umhverfisráðuneytið hefur ákveðið úthlutun úr Veiðikortasjóði fyrir árið 2012. Í kjölfar auglýsingar um umsóknir um styrki úr Veiðikortasjóði til rannsókna á stofnum villtra fugla og villtra spendýra bárust umhverfisráðuneytinu tólf umsóknir frá 15 aðilum að upphæð ríflega 50 milljónir króna. Til úthlutunar voru samtals 28,4 milljónir króna.

Umsóknirnar voru sendar til umsagnar hjá Umhverfisstofnun í samræmi við ákvæði 3. mgr. 11. gr. laga 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, eins og henni var breytt með 39. gr. laga nr. 164/2002. Í samræmi við úthlutunarreglur fyrir Veiðikortasjóð fékk Umhverfisstofnun álit frá ráðgjafarnefnd um úthlutanir úr sjóðnum en í ráðgjafarnefndinni sitja fulltrúar Bændasamtaka Íslands, Skotveiðifélags Íslands og umhverfisverndarsamtaka.

Ráðuneytið hefur að fenginni umsögn Umhverfisstofnunar og áliti ráðgjafarnefndarinnar um umsóknirnar ákveðið að veita eftirfarandi aðilum styrki úr Veiðikortasjóði:

  • Náttúrustofu Norðausturlands, krónur 3.100.000 til verkefnisins: Farhættir og vetrarstöðvar íslenskra svartfugla.
  • Náttúrustofu Suðurlands, krónur 3.160.000 til verkefnisins: Rannsóknir á lunda 2012.
  • Háskóla Íslands ofl., krónur 2.980.000 til verkefnisins: Vetrarfæða sjófugla á íslenska landgrunninu.
  • Melrakkasetri Íslands, krónur 4.700.000 til verkefnisins: Vöktun íslenska refastofnsins.
  • Náttúrufræðistofnun Íslands, krónur 1.060.000 til verkefnisins: Sníkjudýrasýkingar, líkamsástand og stofnbreytingar rjúpu á Íslandi.
  • Náttúrufræðistofnun Íslands, krónur 9.700.000 til verkefnisins Rjúpnarannsóknir 2012.
  • Verkís, krónur 2.200.000 til verkefnisins: Vöktun á ungahlutfalli í veiðistofnum gæsa og anda, með aldursgreiningu vængja úr veiði, og vöktun á ungahlutfalli í friðuðum stofni blesgæsa.
  • Náttúrustofu Austurlands, krónur 1.500.000 til verkefnisins: Gæsabeitarálag á bújörðum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum