Hoppa yfir valmynd

Frétt

31. maí 2012 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Grein umhverfisráðherra í Fréttablaðinu - Mengun hafsins: Áfangar í rétta átt

 Eftirfarandi grein Svandísar Svavardsóttur umhverfisráðherra um mengun hafsins birtist í Fréttablaðinu 31. maí 2012.

 

Mengun hafsins: Áfangar í rétta átt

Árið 1956 fór að bera á undarlegum veikindum í japanska fiskveiðibænum Minamata. Sumir dóu, miklu fleiri sýktust og börn fæddust hræðilega vansköpuð. Sökudólgurinn fannst eftir nokkra leit, hættuleg kvikasilfurssambönd sem verksmiðja á staðnum dældi út í sjó, en fundu sér leið til baka í sjávarfangi. Á næsta ári stendur til að skrifa undir nýtt alþjóðlegt samkomulag gegn kvikasilfursmengun í Minamata. Það verður táknrænn og sögulegur áfangi í baráttunni gegn mengun hafsins, þar sem má segja að ótrúlega mikið hafi áunnist á þessu sviði á undanförnum áratugum.

Alþjóðasamningar hafa náðst um að minnka mengun frá skipum, banna varp úrgangs í hafið og draga úr losun ýmissa hættulegra efna, sem finna sér leið inn í fæðukeðjuna. Kjarnorkuendurvinnslustöðinni í Dounreay í Skotlandi var lokað og dregið hefur úr losun geislavirkra efna frá Sellafield, að hluta til vegna þrýstings frá nágrannaríkjum. Þrávirk lífræn efni mælast langt undir hættumörkum á Íslandsmiðum og styrkur þeirra virðist standa í stað eða fara hægt niður á við, þvert á það sem menn óttuðust fyrir áratug eða svo. Almennur skilningur er á því að hafið getur ekki verið í senn ruslakista og uppspretta fæðu og verðmæta.

Nauðsynlegar aðgerðir og viðbúnaður

Íslensk stjórnvöld voru fyrst ríkja innan OSPAR samningsins til að vekja athygli á ógnun kjarnorkuendurvinnslunnar á Bretlandseyjum fyrir fiskveiðar í Norður Atlantshafi  fyrir rúmum aldarfjórðungi. Íslendingar geta einnig þakkað sér árangur varðandi þrávirk lífræn efni að nokkru, með því að vekja athygli á vandanum á Ríó ráðstefnunni 1992 og ýta í framhaldinu á gerð alþjóðlegs samkomulags. Slíkt hefði auðvitað ekki verið hægt nema með góðri hjálp fleiri ríkja, frjálsra félagasamtaka og fjölþjóðlegra stofnana. Þar má nefna Norðurskautsráðið, en samantektir þess á áhrifum þrávirkra lífrænna efna á lífríki og heilsu fólks fjarri uppsprettum mengunar áttu drjúgan þátt í gerð Stokkhólmssamningsins um að draga úr losun þeirra. Því fer þó fjarri að sigur sé unninn. Aukin byggð og starfsemi við strendur, oft án nauðsynlegrar skólphreinsunar, veldur víða alvarlegri mengun á grunnsævi. Mengun af völdum plastagna og allskyns rusls er vaxandi vandamál, sem leitað er lausna við.

Aukin ásókn í olíuvinnslu á hafi úti, oft við erfiðar aðstæður, kallar á auknar öryggiskröfur og eftirlit. Olíuslysið í Mexíkóflóa árið 2010 sýndi glöggt hve mikið tjón getur orðið við olíuvinnslu á hafsbotni og hve erfitt er að stöðva leka þar. Augu manna beinast nú mjög að olíuvinnslu á norðurslóðum með hopun hafíss, en þar eru allar aðstæður erfiðari og lífríkið viðkvæmara en á suðlægari slóðum. Þar er full ástæða til að fara varlega. Íslendingar þurfa einnig að huga að viðbrögðum við hugsanlegum stórauknum flutningum á olíu með skipum meðfram ströndum landsins. Strand risaolíuskips hér við land gæti valdið stórfelldu tjóni á fiskimiðum og lífríki. Viðbúnaður við hugsanlegum slysum af því tagi hefur verið efldur, m.a. með tilkomu nýs varðskips, bættu eftirliti með skipaumferð og aukinni samvinnu við önnur ríki um viðbrögð ef hætta skapast.

Matvæli úr hreinu hafi

Mengun sjávar er þó minnst til komin vegna stórslysa. Þótt mengun frá starfsemi á Íslandi sé lítil skiptir það okkur miklu máli að vera til fyrirmyndar, meðal annars til að viðhalda trúverðugleika í alþjóðlegu starfi. Íslendingar geta ekki leyft sér að dæla út díoxíni langt yfir eðlilegum mörkum á sama tíma og ýtt er á önnur ríki að draga úr losun þrávirkra efna af því tagi. Átak í skólphreinsun þarf að halda áfram, því framleiðandi hágæða matvæla getur ekki búið við gerlamengaðar strendur rétt hjá vinnslustöðvum. Góður árangur í baráttunni gegn mengun hafsins sýnir okkur mátt alþjóðlegrar samvinnu í umhverfismálum og mikilvægi vöktunar og upplýsingagjafar. Þessi árangur á að vera okkur hvatning til að halda áfram á sömu braut, en ekki tilefni til að sofna á verðinum.


 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum