Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. júní 2012 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Akstursgjald ríkisstarfsmanna - auglýsing nr. 1/2012 - fallin úr gildi

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana sem hér segir:

Almennt gjald

  1. Fyrstu 10.000 km, kr. 117,50 pr. km
  2. Frá 10.000 til 20.000 km, kr. 106,00 pr. km
  3. Umfram 20.000 km, kr. 94,00 pr. km

 Við útreikning á sérstöku gjaldi skal bæta 15% álagi á almenna gjaldið og við útreikning á torfærugjaldi skal bæta 45% álagi á almenna gjaldið.

Akstursgjald þetta gildir frá og  með 1. júní 2012. Jafnframt fellur úr  gildi  auglýsing nr. 3/2011 dagsett 29. september 2011.

Vakin er athygli á því að auglýsingar ferðakostnaðarnefndar eru birtar  á vefsíðu fjármálaráðuneytisins. Þar er auk þess að finna reglur nefndarinnar um greiðslu dagpeninga erlendis og greinargerð um forsendur útreikninga akstursgjalds og dagpeninga. Veffangið er: fjarmalaraduneyti.is/ferdakostnadur.

Ferðakostnaðarnefnd

Gildandi auglýsing um akstursgjald ríkisstarfsmanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum