Hoppa yfir valmynd

Frétt

4. júní 2012 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 2/2012

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

  1. Gisting og fæði í einn sólarhring, kr. 27.700
  2. 2. Gisting í einn sólarhring, kr. 17.780
  3. 3. Fæði hvern heilan dag, minnst  10 tíma ferðalag, kr. 9.920
  4. 4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag, kr. 4.960

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2012. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 4/2011 dags. 29. september 2011.

Í gildi eru hagstæðir rammasamningar Ríkiskaupa við hótel og gistihús um gistingu og veitingar fyrir ríkisstarfsmenn á ferðalögum innanlands. Nánari upplýsingar um samningana er að finna á vef Ríkiskaupa, rikiskaup.is, með aðgangsupplýsingum sem stofnunin veitir, [email protected].

Nefndin fer þess á leit við ráðuneyti og stofnanir að viðmiðunarfjárhæðir um greiðslur dagpeninga og rammasamningar um gistingu og veitingar verði kynntir starfsfólki.

Vakin er athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármálaráðuneytisins og er veffangið eftirfarandi: www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostnadur

Reykjavík, 1. júní 2012.

Ferðakostnaðarnefnd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum