Hoppa yfir valmynd

Frétt

8. júní 2012 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Landslagssamningur Evrópu undirritaður

Laxá í Kjós
Laxá í Kjós

Ísland hefur ákveðið að undirrita Landslagssamning Evrópu og verður það formlega gert síðar í júní-mánuði. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra tilkynnti þetta á norrænni ráðstefnu um landslag sem hófst á Selfossi í gær.

Markmið Landslagssamnings Evrópu er að stuðla að verndun, stýringu og skipulagi landslags ásamt því að koma á fót evrópsku samstarfi um landslag. Samningurinn inniheldur m.a. almenn ákvæði um fjögur meginatriði:

  • Að veita landslagi ákveðinn sess í lögum og viðurkenna mikilvægi þess í umhverfi landsins.
  • Að móta og framfylgja stefnu um landslag sem miðar að verndun, nýtingu og skipulagi þess.
  • Að tryggja aðkomu almennings o.fl. að mótun stefnu um landslag.
  • Að huga að landslagi við aðra stefnumótun, svo sem í stefnu um byggðaþróun, menningarmál, landbúnað, félagsmál og efnahagsmál.

Með þátttöku í Landslagssamningi Evrópu er staðfestur vilji stjórnvalda til að stuðla að landslagsvernd og að taka ákveðin skref í þá átt í samræmi við leiðbeiningar samningsins. Þá getur Ísland nýtt sér vinnu sem þegar hefur farið fram í tengslum við samninginn í öðrum ríkum Evrópu. Að auki mun Ísland leggja fram þekkingu og reynslu sem orðið hefur til hérlendis á sviði landslagsgreiningar og –verndar.

Fullgilding samningsins er meðal markmiða samstarfsyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 2009.

Gert er ráð fyrir að sendiherra íslands í París undirriti samninginn þann 28. júní næstkomandi fyrir hönd Íslands.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum