Hoppa yfir valmynd

Frétt

18. júní 2012 Dómsmálaráðuneytið

Upplýsingar um skráningu á kjörskrá

Kjósendur geta nú kannað hvar þeir eru á kjörskrá í forsetakosningunum laugardaginn 30. júní næstkomandi á kosningavef innanríkisráðuneytisins, kosning.is. Reykvíkingar og íbúar nokkurra stærri sveitarfélaga í landinu fá einnig upplýsingar um kjörstað og kjördeild.

Þjóðskrá Íslands sér um gerð kjörskrárstofna og sveitarstjórnir gera kjörskrár á grundvelli þeirra. Enginn getur neytt kosningarréttar nema nafn hans sé á kjörskrá þegar kosning fer fram. Á kjörskrárstofni eru allir íslenskir ríkisborgarar sem skráðir voru með lögheimili í ákveðnu sveitarfélagi samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár 9. júní 2012 og fæddir eru 30. júní 1994 og fyrr. Ennfremur eru á kjörskrárstofni þeir íslenskir ríkisborgarar, sem lögheimili eiga erlendis en eiga kosningarrétt samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis.


Á kosningavef innanríkisráðuneytisins er að finna fróðleik og hagnýtar upplýsingar um undirbúning og framkvæmd kosninganna 30. júní nk.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum