Hoppa yfir valmynd

Frétt

30. júní 2012 Forsætisráðuneytið

Jafnréttissjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki

Jafnréttissjóður
Jafnréttissjóður

Jafnréttissjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Tilgangur sjóðsins er að efla kynjarannsóknir og stuðla þannig að bættri stöðu kvenna og karla og framgangi jafnréttis. Í samræmi við hlutverk sjóðsins verða veittir styrkir til rannsókna sem tengjast jafnréttismálum.

Gert er ráð fyrir að sjóðurinn hafi 10 milljónir króna til ráðstöfunar fyrir hvert starfsár og að styrkir séu ekki færri en þrír og ekki fleiri en fimm.

Gerðar eru skýrar faglegar og fræðilegar kröfur til umsækjenda. Ekki verða veittir styrkir til verkefna sem þegar er lokið.

Einungis verður tekið við umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum, þau má hér á vefnum. Umsóknarfrestur er til 1. september 2012 en úthlutað verður úr sjóðnum 24. október 2012.

Jafnréttissjóður starfar samkvæmt reglum nr. 513/2006, um úthlutun styrkja Jafnréttissjóðs.

Reykjavík 30. júní 2012

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum