Hoppa yfir valmynd

Frétt

9. ágúst 2012 Heilbrigðisráðuneytið

Umsagnarfrestur um drög að lyfjastefnu framlengdur

Lyfjamál
Lyfjamál

Frestur til að skila umsögnum um drög að lyfjastefnu sem velferðarráðuneytið birti opinberlega í lok júní hefur verið framlengdur til 1. september næstkomandi. Í stefnunni er birt framtíðarsýn á sviði lyfjamála, auk mælanlegra markmiða og tillagna að aðgerðum til að ná þeim árangri sem að er stefnt.

Á vegum velferðarráðuneytisins hefur um skeið verið unnið að gerð lyfjastefnu til ársins 2020 og aðgerðaáætlun henni tengdri til ársins 2014. Samráðsfundir voru haldnir með hagsmunaaðilum og stofnunum um helstu áherslur og breytingar frá þeirri lyfjastefnu sem gilti árin 2007–2012 auk þess sem um 70 manna heilsdagsvinnufundur um lyfjastefnu var haldinn með aðilunum þann 16. mars 2012.

Öllum er frjálst að gera athugasemdir við drögin. Óskað er eftir að athugasemdir séu stuttar og hnitmiðaðar. Ef athugasemdir varða texta og orðalag er óskað eftir beinum tillögum að nýjum texta í stað almennra athugasemda.

Umsagnir skal senda á netfangið: [email protected] og skrifa í efnislínu: „Umsögn um lyfjastefnu“

Frestur til að skila umsögnum rennur út 1. september 2012.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum