Hoppa yfir valmynd

Frétt

12. ágúst 2012 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-júní 2012

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2012 liggur nú fyrir. 

Handbært fé frá rekstri var neikvætt um 19,2 ma.kr. en var neikvætt um 29,7 ma.kr. á sama tímabili 2011. 

Tekjur reyndust 37,8 ma.kr. hærri en í fyrra á meðan gjöldin jukust um 19,4 ma.kr. milli ára. 

Þetta er betri niðurstaða en gert var ráð fyrir í áætlunum þar sem gert var ráð fyrir að handbært fé frá rekstri yrði neikvætt um 46,1 ma.kr. Hluti af því fráviki skýrist með því að raundreifing útgjalda hefur verið önnur en gert var ráð fyrir. Inni í heimildum er búið að taka tillit til fjárheimildastöðu frá fyrra ári.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum