Hoppa yfir valmynd

Frétt

28. ágúst 2012 Dómsmálaráðuneytið

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar erlendis

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar erlendis vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 20. október hófst 26. ágúst sl. Hægt er að greiða atkvæði í öllum sendiráðum Íslands erlendis og aðalræðisskrifstofum Íslands í New York,  Winnipeg og Þórshöfn í Færeyjum. Einnig er unnt að kjósa utan kjörfundar eftir samkomulagi hjá kjörræðismönnum Íslands. Búist er við því að kosið verði á u.þ.b. 235 stöðum í 84 löndum.

Í frétt á vef utanríkisráðuneytisins er listi yfir alla kjörræðismenn Íslands og væntanlegum kjósendum bent á að hafa samband við þá áður en þeir koma til að kjósa.  Athygli er ennfremur vakin á því, að kjósendum ber sjálfum að póstleggja atkvæði sín eða koma þeim á annan hátt í tæka tíð til viðkomandi kjörstjórnar á Íslandi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum