Hoppa yfir valmynd

Frétt

30. ágúst 2012 Forsætisráðuneytið

Ný verkaskipting í Stjórnarráði Íslands

Tillögur forsætisráðherra um breytt skipulag Stjórnarráðs Íslands voru staðfestar á fundi ríkisráðs í dag.

Breytingarnar fela í sér að í stað iðnaðarráðuneytis, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis, umhverfisráðuneytis, efnahags- og viðskiptaráðuneytis og fjármálaráðuneytis komi atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti og umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Með breytingum hefur ráðuneytum fækkað úr tólf í átta í tíð núverandi ríkisstjórnar.

Samhliða breytingum á skipan ráðuneyta voru staðfestar breytingar á skiptingu stjórnarmálefna á milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Helstu breytingar snúa að því að verkefni sem áður voru í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu verður skipt upp milli fjármála- og efnahagsráðuneytis og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis. Þá verða verkefni sem tengjast rannsóknum og ráðgjöf varðandi auðlindir færð til umhverfis- og auðlindaráðuneytis.

Framangreindar breytingar taka gildi 1. september nk.

Sjá nánar neðangreinda forsetaúrskurði:

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum