Hoppa yfir valmynd

Frétt

14. september 2012 Dómsmálaráðuneytið

Próf í íslensku fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt

Íslenskupróf vegna umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt verða næst haldin á vegum Námsmatsstofnunar í desember og er skráning hafin.

Prófin verða haldin á höfuðborgarsvæðinu 10.-14. desember og á eftirtöldum stöðum á landsbyggðinni: Akureyri 5. desember, Ísafirði 6. desember og Egilsstöðum 7. desember.

Skráning í prófin fer fram með rafrænum hætti á vef Námsmatsstofnunar,
www.namsmat.is, til og með 10. nóvember. Gjald fyrir þátttöku í prófi er 7.000 krónur sem greiða skal í síðasta lagi 10. nóvember inn á reikning Námsmatsstofnunar. Upplýsingar þar að lútandi er að finna á vef stofnunarinnar.

Sjá nánar á vefnum
www.namsmat.is. Einnig eru veittar upplýsingar í síma 550 2400.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum