Hoppa yfir valmynd

Frétt

28. september 2012 Forsætisráðuneytið

8 milljóna króna stuðningur ríkisstjórnarinnar til frekari björgunaraðgerða

Að tillögu forsætisráðherra samþykkti ríkisstjórnin á fundi sínum í dag að verja 8 milljónum króna til björgunarstarfa í kjölfar óveðursins á Norðausturlandi á dögunum. Gert er ráð fyrir að frekari leit og björgun sauðfjár verði skipulögð af hálfu björgunarsveita hið fyrsta.

Í minnisblaði frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra er áætlað að enn vanti um 5.500 kindur og lömb.

Frekari leit og björgunaraðgerðum fylgir talsverður kostnaður, en verði aðgerðirnar árangursríkar er ljóst að verulega gæti dregið úr kostnaði vegna bóta.

Í minnisblaðinu segir jafnframt: „Ekki er síður mikilvægt að slíkt átak sendir skýr skilaboð um samstöðu samfélagsins við þá sem eiga um sár að binda eftir hamfarirnar og er um leið hluti af ferli við úrvinnslu áfallsins.“

Meðfylgjandi er minnisblað forsætisráðherra um frekari leit, björgun og smölun í kjölfar óveðursins á Norðausturlandi.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum