Hoppa yfir valmynd

Frétt

4. október 2012 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Grein umhverfis- og auðlindaráðherra í Fréttablaðinu - Í þágu nýtingar og þröngra ráðagerða

Eftirfarandi grein Svandísar Svavarsdóttur umhverfis- og auðlindaráðherra birtist í Fréttablaðinu 3. október 2012.

 

Ritstjóri Fréttablaðsins fagnar tillögu sjálfstæðismanna til breytinga á lögum um rammaáætlun. Leggst hann þar á árar með þeim sem fullyrða að vegna þrýstings frá Vinstri grænum hafi verið vikið í „veigamiklum atriðum“ frá þeirri forgangsröðun sem verkefnisstjórn lagði til. Það er ljóst af leiðara ritstjórans að honum er ekki ferlið kunnugt né heldur tekur hann afstöðu til veigamikilla breytinga sem lagðar eru til í frumvarpi sjálfstæðismanna.

Sjálfstæðismenn samþykktu verklag rammaáætlunar án andstöðu á síðasta ári. Undanfarið hefur flokkurinn hins vegar leitast við að þyrla upp moldviðri, kynda undir tortryggni og haft uppi hótanir um að öllu ferlinu verði varpað fyrir róða komist flokkurinn til valda.

Breytingarnar sem við ráðherrarnir gerðum voru faglegar, byggðar á lögformlegu umsagnarferli og eru kirfilega rökstuddar í þingsályktunartillögunni. Þær snúast um upplýsingaöflun og nánari skoðun í ljósi gagna og alvarlegra athugasemda. Hinn svokallaði „sáttafarvegur“ Sjálfstæðisflokksins snýst um að hverfa frá þessu verklagi.

Í fyrsta lagi leggur Sjálfstæðisflokkurinn til að fellt sé brott ákvæði um að þau svæði sem njóti verndar falli utan rammaáætlunarinnar. Það þýðir að sjálfstæðismenn vilja að landsvæði sem núna njóta friðlýsingar, friðlýst svæði og svæði innan þjóðgarða, komi öll til álita sem virkjunarsvæði!

Í öðru lagi er gert ráð fyrir að ákafar megi ganga á svæði í biðflokki í rannsóknarskyni og enn fremur að víðtækar rannsóknir megi stunda á svæðum sem ekki hafa verið tekin til faglegrar umfjöllunar innan rammaáætlunar – en slík svæði falla samkvæmt gildandi lögum undir sömu reglur og biðflokkur.

Loks gerir flokkurinn tillögu um að verkefnisstjórn rammaáætlunar skili endanlegri flokkun virkjanakostanna, bæði án mikilvægrar aðkomu almennings í opnu umsagnarferli og án þess að ráðherra taki ábyrgð á jafn afdrifaríku máli og rammaáætlun er í reynd. Sú ábyrgð hvílir að sjálfsögðu á lýðræðislegu umboði og faglegum grunni.

Allar breytingarnar í frumvarpi sjálfstæðismanna eru lagðar á vogarskálar nýtingar á kostnað náttúruverndar og á vogarskálar þröngra ráðagerða á kostnað gagnsæis og samráðs við almenning. Það veldur vonbrigðum að ritstjóri Fréttablaðsins, sem oft hefur sýnt á sér betri hliðar, leggist á þá sveif.

Náttúruverndarsjónarmið virðast ekki eiga sér málsvara meðal kjörinna fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Þingflokkurinn er herskár og afturhaldssinnaður í málaflokknum. Að minni reynslu endurspeglar þetta alls ekki kjósendur flokksins. Leiðarahöfundur skipar sér í þrönga sveit með félögum sínum á þingi þegar nær væri að kynna fyrir lesendum vönduð og lýðræðisleg vinnubrögð um rammaáætlun.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum