Hoppa yfir valmynd

Frétt

5. október 2012 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Eflum háskóla- og vísindastarf

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra skrifar um hækkuð framlög til samkeppnissjóða á sviði rannsókna og tækniþróunar.


Með hruninu árið 2008 brustu allar forsendur fyrir opinberum útgjöldum og hefur meginverkefni stjórnvalda síðan verið að skapa langtímaforsendur fyrir velferðar- og þekkingarsamfélagi á Íslandi. Sú vinna hefur kallað á forgangsröðun á öllum sviðum ásamt umtalsverðum niðurskurði, m.a. til háskóla- og vísindamála. Þannig hafa tæpir 3,5 ma. kr. verið teknir út úr háskólakerfinu frá 2008 til 2012. Þrátt fyrir niðurskurð undanfarinna ára hafa háskólarnir tekið á sig aukna ábyrgð sem sést á því að nú stunda yfir tvö þúsund fleiri nemendur háskólanám en fyrir hrun. Þannig hafa þeir lagt sitt af mörkum til þess að íslenskt samfélag komi betur menntað og þar með sterkara út úr kreppunni. Við fjárlagagerð undanfarinna ára hefur forgangsröðun verið í þágu Háskóla Íslands enda er hann burðarstoð íslenska háskóla- og vísindasamfélagsins. Eigi að síður hefur hann tekið á sig stærsta hluta niðurskurðarins eða 2,3 ma. kr. og mesta nemendafjölgun.

Það dylst engum að háskólakerfið á Íslandi er, og hefur reyndar verið frá því fyrir hrun, undirfjármagnað. Árið 2009 kostaði hver háskólanemi ríflega þriðjungi minna á Íslandi en meðaltal OECD-ríkja og meðalframlög á hvern háskólanema í Noregi og Svíþjóð voru helmingi hærri en á Íslandi. Það er ljóst að við þetta ástand verður ekki búið mikið lengur. Það er mikilvægt að eflingu samkeppnissjóðanna verði fylgt eftir með auknum framlögum til háskólanna. Þar verður að byrja á að tryggja þeim framlög í samræmi við þá nemendafjölgun sem orðið hefur á undanförnum árum. Ég legg á það mikla áherslu að þetta verði gert strax í fjárlögum næsta árs leiði endurskoðun efnahagsforsenda fjárlagafrumvarpsins til þeirrar niðurstöðu að svigrúm sé til aukinna útgjalda. Næsta verkefni er svo að tryggja eðlilega fjármögnun háskólakerfisins til framtíðar með því að hækka grunnframlög til háskólanna.

Með frumvarpi til fjárlaga ársins 2013 er stigið fyrsta skref íslensks háskóla- og vísindasamfélags út úr kreppunni. Frumvarpið gerir ráð fyrir að framlög til samkeppnissjóða á sviði rannsókna og tækniþróunar hækki um samtals 1,3 milljarða króna. Þar vegur þyngst hækkun á framlagi til rannsóknarsjóðs, tækniþróunarsjóðs og á framlagi til markáætlunar á sviði vísinda og tækni. Er þessi hækkun í samræmi við stefnu vísinda- og tækniráðs um eflingu samkeppnissjóða.

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum