Hoppa yfir valmynd

Frétt

5. október 2012 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Umsækjendur um stöðu skrifstofustjóra

Tuttugu og fimm umsækjendur eru um stöðu skrifstofustjóra á skrifstofu landgæða í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, en ráðuneytið auglýsti starfið laust til umsóknar þann 8. september síðastliðinn.

Umsækjendur eru:

  • Anna Guðrún Þórhallsdóttir, prófessor
  • Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, aðjúnkt
  • Banu Naimy, leiðbeinandi
  • Davíð Egilson, fagstjóri
  • Dóra Magnúsdóttir, markaðsstjóri
  • Elísabet Katrín Friðriksdóttir, meistaranemi
  • Geir Oddsson, aðalráðgjafi
  • Gerður Ríkharðsdóttir, rekstrarhagfræðingur
  • Guðmundur Albert Harðarson, framkvæmdastjóri
  • Herdís Helga Schopka, jarðefnafræðingur
  • Íris Björg Kristjánsdóttir, sérfræðingur
  • Jón Geir Pétursson, sérfræðingur
  • Kristján Hlynur Ingólfsson, umhverfisfræðingur
  • Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnastjóri
  • Maríanna Hugrún Helgadóttir, framkvæmdastjóri
  • Olga Hanna Möller, kennari
  • Ólafur Arnar Jónsson, sviðsstjóri
  • Ólafur Melsted, meistaranemi
  • Ólafur Ragnar Ólafsson, B.Sc. í iðnaðarverkfræði
  • Rannveig Magnúsdóttir, spendýravistfræðingur og kvikmyndagerðarmaður
  • Sigurður Ármann Þráinsson, líffræðingur
  • Snorri Baldursson, þjóðgarðsvörður
  • Steinar Almarsson, sjálfstætt starfandi
  • Þorsteinn Sæmundsson, forstöðumaður
  • Þórunn Pétursdóttir, doktorsnemi

Sérstök hæfnisnefnd, skipuð þremur einstaklingum, mun meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð til ráðherra sem ræður í starfið. Nefndin starfar skv. reglum nr. 393/2012 um ráðgefandi nefndir er meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands.

Nefndina skipa Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, formaður, Anna Dóra Sæþórsdóttir, varaforseti líf- og umhverfisvísindadeildar Háskóla Íslands og Sif Guðjónsdóttir, lögfræðingur á löggjafarskrifstofu forsætisráðuneytisins.

Skv. reglunum er nefndin sjálfstæð í störfum sínum og skal starf hennar miða að því að leiða í ljós með gagnsæjum hætti hvaða umsækjandi eða umsækjendur séu hæfastir til að hljóta skipun í starfið. Þá skal nefndin gæta í hvívetna samræmis gagnvart umsækjendum, þannig að jafnræði sé í heiðri haft.

Reglur nr. 393/2012 um ráðgefandi nefndir er meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum