Hoppa yfir valmynd

Frétt

23. október 2012 Forsætisráðuneytið

Málþing og úthlutun styrkja úr Jafnréttissjóði fyrir árið 2012

Jafnréttissjóður
Jafnréttissjóður

Forsætisráðherra afhendir styrki úr Jafnréttissjóði á Kvennafrídeginum, miðvikudaginn 24. október. Styrkirnir verða afhentir við athöfn í Rímu á jarðhæð Hörpu kl. 15. Dagskráin hefst með málþingi um niðurstöður þeirra rannsóknarverkefna sem hlutu styrki úr sjóðnum árið 2008. Jafnframt mun velferðarráðherra kynna nýja framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarnarinnar um launajafnrétti kynja.

Þekking í þágu jafnréttis

Dagskrá í tilefni af styrkveitingu Jafnréttissjóðs miðvikudaginn 24. október kl. 15-17 í Hörpu.

  1. Ávarp forsætisráðherra Jóhönnu Sigurðardóttur.
  2. Erla Dóris Halldórsdóttir doktorsnemi í sagnfræði: Ljósfaðir, yfirsetumaður og/eða accoucheur og aðkoma þeirra að barnsfæðingum. Áhrif kyngervis á ljósmæðrastéttina árin 1760-1880.
  3. Jónína Kristjánsdóttir MA í alþjóðafjármálum og bankastarfsemi: Mikilvægi fjölbreytileika í stjórnum fyrirtækja.
  4. Anna Guðrún Edvardsdóttir doktorsnemi við menntavísindasvið HÍ: Staða og rými kvenna í dreifbýli á Íslandi.
  5. Rósa G. Erlingsdóttir formaður Jafnréttissjóðs kynnir styrkveitingar Jafnréttissjóðs 2012. Afhending.
  6. Velferðarráðherra Guðbjartur Hannesson kynnir aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í launajafnrétti kynja.

Um Jafnréttissjóð:

Í aðdraganda 30 ára afmælis Kvennafrídagsins 1975 samþykkti ríkisstjórn Íslands árið 2005 að stofna sérstakan rannsóknasjóð, Jafnréttissjóð, sem ætlað er að veita fé til rannsókna á stöðu kvenna og karla.  Sjóðnum er ætlað að vera framlag og hvatning til þess að hér á landi séu unnar vandaðar rannsóknir á sviði jafnréttis- og kynjafræða. Lögð er áhersla á að veita fé annars vegar til rannsókna á stöðu karla og kvenna á vinnumarkaði og hins vegar til rannsókna á áhrifum gildandi löggjafar á sviði jafnréttismála. Þess utan er talið mikilvægt að styrkja rannsóknir á þeim málum sem eru ofarlega á baugi í fræðilegri og opinberri umræðu hverju sinni. Sérstaklega er horft til þátttöku ungra vísindamanna í rannsóknarverkefnum og þess að styrkja doktorsrannsóknir á sviðinu.

Sjóðurinn starfar skv. reglum um úthlutun styrkja Jafnréttissjóðs nr. 513/2006. Jafnréttissjóður er vistaður í forsætisráðuneyti og skipar forsætisráðherra formann sjóðsins sem er Rósa Guðrún Erlingsdóttir, stjórnmálafræðingur og doktorsnemi við Háskóla Íslands. Aðrir í stjórn sjóðsins eru Jóna Pálsdóttir, tilnefnd af menntamálaráðherra og Ingi Valur Jóhannsson, tilnefndur af velferðarráðherra. Varamenn eru Stefán Stefánsson deildarstjóri í menntamálaráðuneyti, Björg Fenger, sérfræðingur í velferðarráðuneyti og Hildur Jónsdóttir jafnréttisfulltrúi í forsætisráðuneyti.

Í ár er veitt úr sjóðnum í fjórða skipti en áður voru veittir styrkir árin 2006, 2007 og 2008. Sjóðurinn starfaði ekki á árunum frá 2009-2011. Að þessu sinni bárust 13 umsóknir og var alls sótt um 39,3 milljónir króna. Að þessu sinni fá fimm verkefni styrk samtals að upphæð 9,0 milljónum króna.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum