Hoppa yfir valmynd

Frétt

24. október 2012 Forsætisráðuneytið

Nú verða verkin að tala

Kvennafrídagurinn 24. október hefur hér á landi að miklu leyti verið helgaður baráttunni fyrir réttindum kvenna á vinnumarkaði og fyrir jöfnum aðgangi kynjanna að valdastofnunum samfélagsins. Á Íslandi getum við verið þakklát fyrir góðan árangur í þessari baráttu, sem aldrei hefði náðst nema vegna þess að krafan um jafnrétti nýtur mikils stuðnings og er borin uppi af öflugri grasrót.

Hlutur kynjanna í ríkisstjórn og í æðstu embættum hefur verið jafnaður, lög hafa verið sett um kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja og lífeyrissjóða og í nefndum og ráðum á vegum hins opinbera eru 40% sætanna nú skipuð í samræmi við jafnréttislög.

Krafan um launajafnrétti kynjanna hefur hljómað einna hæst, enda virðist sem árangur á því sviði sé afar torsóttur. Enn finna launagreiðendur leiðir fram hjá lögum, reglum, samþykktum og ákalli víðs vegar úr samfélaginu um jöfn laun kynjanna fyrir sambærileg störf sem krafist hefur verið áratugum saman.

Á dögunum samþykkti ríkisstjórnin aðgerðaáætlun um launajafnrétti kynja með sautján aðgerðum sem spanna rannsóknir, samstarf við aðila vinnumarkaðar, jafnlaunaúttektir og innleiðingu á hinum nýja jafnlaunastaðli, svo nokkuð sé nefnt. Til að ýta henni duglega úr vör var ákveðið að flýta gerð jafnlaunaúttekta í ráðuneytum sem síðar yrðu fyrirmynd að jafnlaunaúttektum í stofnunum ríkisins sem næst verður ráðist í.

Nú hafa slíkar úttektir verið gerðar í ráðuneytunum og í einhverjum tilvikum hefur komið í ljós ástæða til að leiðrétta laun í kjölfarið, ekki aðeins til að eyða launamun milli kynja heldur einnig milli starfsmanna almennt. Í slíkar leiðréttingar verður nú þegar ráðist.
Úttektirnar hafa leitt í ljós að styrkja þarf aðferðafræði við launasetningu og hefur ríkisstjórnin því jafnframt samþykkt að hefja vinnu við mótun launastefnu Stjórnarráðsins þar sem launajafnrétti kynja, launasetning á grundvelli málefnalegra viðmiða og virkt eftirlit verði meðal hornsteina.

Í dag verður nýsamþykkt aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar gegn launamun kynja kynnt opinberlega og við sama tækifæri verður undirrituð viljayfirlýsing með heildarsamtökum aðila vinnumarkaðarins um samvinnu við stjórnvöld um að stórefla baráttuna fyrir launajafnrétti kynja, í samræmi við aðgerðaáætlunina. Nú verða verkin að tala.
Til hamingju með daginn!

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum