Hoppa yfir valmynd

Frétt

25. október 2012 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Upplýsingar um innkallaðar vörur á einum stað

Reiðhjól
Reiðhjól

Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) hefur opnað vefsvæði þar sem nálgast má með einföldum hætti nýjustu upplýsingar um vörur, aðrar en matvæli, sem hafa verið innkallaðar af markaði í Evrópu, Bandaríkjunum, Ástralíu og Kanada.

Vefsvæðinu,  globalrecalls.oecd.org, er ætlað að ýta undir og bæta vöruöryggi en Efnahags- og framfarastofnunin telur kostnað vegna dauðsfalla og slysa af völdum skaðlegra framleiðsluvara nema meiru en einni billjón bandaríkjadala árlega, sem er meira en 126 billjónir króna.

Á vefsvæðinu geta neytendur kannað hvort vara sem þeir hafa hug á að kaupa hafi verið innkölluð í öðru landi. Þá geta innflytjendur og smásölukaupmenn fylgst með uppplýsingum á vefnum og brugðist þannig hratt við áhyggjum sem uppi gætu verið um öryggi vara sem þeir bjóða til sölu.

Loks gagnast vefurinn við að bæta samhæfingu milli eftirlitsaðila og stjórnvalda í því skyni að fjarlægja hættulegar vörur af markaði sem fyrst og bæta eftirfylgni.

Síðastliðinn áratug hefur orðið snörp aukning í innköllunum framleiðsluvara, að því er fram kemur í frétt Efnahags- og framfarastofnunarinnar um vefsvæðið. Stjórnvöld víða um heim birta reglulega fréttir um innkallaðar vörur á heimasíðum sínum en með nýja vefsvæðinu verður í fyrsta sinn hægt að nálgast slíkar upplýsingar frá ólíkum löndum á einum stað.

Vefsvæðið globalrecalls.oecd.org

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum