Hoppa yfir valmynd

Frétt

29. október 2012 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra til norrænna funda í Helsinki

Forsætisráðherra sækir í dag fund Norðurlandanna og Eystrasaltsríkja, sem haldinn er í Helsinki síðdegis. Á dagskrá fundarins eru m.a. efnahagsmálin í Evrópu, alþjóðamál og samstarf ríkjanna átta á ýmsum vettvangi.

Á morgun eru fundir norrænna forsætisráðherra og fundir með leiðtogum sjálfsstjórnarsvæðanna, auk þess sem allir norrænu forsætisráðherrarnir taka þátt í setningu og umræðum á Norðurlandaráðsþingi, sem fagnar 60 ára afmæli í ár.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum