Hoppa yfir valmynd

Frétt

29. október 2012 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Samræmd flokkun og merking hættulegra efna

Hættutákn
Hættutákn
Ný reglugerð um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna hefur tekið gildi en með henni er komið á flokkunarkerfi efna og efnablandna sem tekið verður upp í áföngum. Um er að ræða innleiðingu Evrópureglugerðar nr. 1272/2008.

Með reglugerðinni er tekin upp samræmd flokkun og merking hættulegra efna á heimsvísu, ný varnaðar-merki líta dagsins ljós auk nýrra hættuflokka og hættu- og varnaðarsetninga. Ábyrgðin með flokkuninni færist frá yfirvöldum yfir á atvinnulífið en flokkun nokkurra varasömustu efnanna verður áfram samræmd.

Reglugerðin kemur í stað reglugerðar nr. 236/1990 en gamla reglugerðin fellur alfarið úr gildi 1. júní 2015.

Nánar má lesa um reglugerðina á vef Umhverfisstofnunar.

Reglugerð nr. 866/2012 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablanda.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum