Hoppa yfir valmynd

Frétt

14. nóvember 2012 Utanríkisráðuneytið

Samstarfssamningur ráðuneytis og UN Women undirritaður

Inga Dóra og Össur undirrita samninginn.

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Inga Dóra Pétursdóttir framkvæmdastýra landsnefndar UN Women undirrituðu í dag samstarfssamning ráðuneytisins við landsnefndina fyrir 2013 – 2015.  Utanríkisráðuneytið og UN Women hafa um árabil átt farsælt samstarf og frá árinu 2007 hefur samstarfið verið formgert með samningi. Framlög til landsnefndarinnar samkvæmt samstarfssamningnum munu nema samtals 26,5 m.kr. á gildistímanum, með fyrirvara um fjárveitingu samkvæmt fjárlögum.

Markmið samningsins er að efla kynningu á hlutverki og starfsemi UN Women og auka samvinnu utanríkisráðuneytisins við landsnefndina. Landsnefndin hefur veitt ráðuneytinu ráðgjöf og umsögn vegna málefna á fjölþjóðlegum vettvangi hvað varðar kynjajafnréttismál. Ennfremur  hefur landsnefndin veitt öllu útsendu starfsfólki á vegum Íslensku friðargæslunnar fræðslu um jafnréttismál og framkvæmd ályktunar 1325 um konur, frið og öryggi áður en það hverfur til starfa á vettvangi.

Starf Landsnefndar UN Women á Íslandi er öflugt, en landsnefndin gegnir lykilhlutverki í að sinna upplýsingastarfi til almennings á Íslandi um kynjajafnrétti og réttindabaráttu kvenna í þróunarlöndum. Fjáröflun landsnefndarinnar er ekki síst mikilvæg, en árlega sendir landsnefndin rausnarleg framlög í Styrktarsjóð Sameinuðu Þjóðanna um afnám ofbeldis gegn konum.

Í utanríkisstefnu Íslands er lögð rík áhersla á kynjajafnrétti og er jafnrétti kynjanna og valdefling kvenna áhersluatriði í alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands.  Í þingsályktun um áætlun um alþjóðlega þróunarsamvinnuáætlun Íslands 2011-2014, sem samþykkt var á Alþingi  í júní 2011,  er UN Women skilgreind sem ein af lykilstofnunum í þróunarsamvinnu Íslands og er þar kveðið á um samstarf við landsnefndina.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum